Þróunarsjóður EFTA
Þróunarsjóður EFTA var stofnaður í þeim tilgangi að jafna efnahagslegan og félagslegan mismun á EES-svæðinu. Þau ríki sem eiga rétt á styrkjum úr sjóðnum eru Spánn, Portúgal, Grikkland auk hinna nýju aðildarríkja ESB (Eistland, Lettland, Litháen, Kýpur, Malta, Pólland, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland, Ungverjaland).
Formlega verða fyrirtæki og stofnanir í þessum löndum að vera í forsvari fyrir umsókn um styrk til stjórnvalda í sínu landi. Íslensk fyrirtæki eru hvött til að skoða vel hugsanleg viðskiptatækifæri og samstarfsverkefni sem í boði eru í þessum löndum. Áreiðanlegir samstarfsaðilar og vel gerð umsókn eru mikilvægir þættir í því ferli sem felst í að sækja um styrk til Þróunarsjóðs EFTA. Nánar um Þróunarsjóð EFTA hér
Nánari upplýsingar veitir:
Kristján Andri Stefánsson
Sendiherra
Utanríkisráðuneytinu
sími: 545 9900
Netfang: kristjan.a.stefansson@utn.stjr.is

English

