Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Alþjóðastarf » Vísindavaka 22.sept 2006

Vísindavaka 22. september 2006

RANNÍS stendur í annað sinn fyrir Vísindavöku – stefnumóti við vísindamenn , 22. september 2006 í Listasafni Reykjavíkur kl. 18:00-21:00. Dagurinn er tileinkaður vísindamönnum og haldinn hátíðlegur í helstu borgum Evrópu.

 Markmiðið með Vísindavökunni er vekja áhuga almennings á vísindum og auka vitund um starf vísindamanna og mikilvægi þeirra. Á Vísindavökunni munu  fjölmargir vísindamenn frá fyrirtækjum, stofnunum og háskólum kynna fyrir almenningi þau verkefni sem þeir eru vinna að, auk þess sem Vísindaveröld Fjölskyldu og húsdýragarðsins verður með útibú á staðnum.  

Sjá yfirlit yfir þátttakendur og rannsóknaverkefni hér að neðan.

lógó

Við buðum börnum og unglingum að koma með innlegg í Vísindavökuna í ár m.a. með því að efna til eftirfarandi keppna:

Ljósmyndasamkeppni unga fólksins.
RANNÍS, í samvinnu við Nýherja, efndi til ljósmyndasamkeppni framhaldsskólanema á aldrinum 16-23 ára. Viðfangsefnið var ,,Andlit vísindamannsins". Verðlaun fyrir bestu ljósmyndina verða veitt á Vísindavökunni.  Nöfn vinningshafa má sjá hér.

 

 

Teiknisamkeppni barna.
RANNÍS, í samstarfi við Barnablað Morgunblaðsins og Eddu útgáfu, efndi til teiknisamkeppni barna Verkefnið var  ,,Vísindamaðurinn minn". Á Vísindavökunni verða veittar 10 verðlaun í boði Eddu útgáfu fyrir skemmtilegar myndir auk þess sem yfir 200  innsendar myndir verða sýndar. Sjá nánar
hér.

 

 

Að lokum vildum við að vekja sérstaka athygli á mikilvægi vísindamiðlunar fyrir samfélagið:

 

 

Verðlaun RANNÍS  fyrir framlag til vísindamiðlunar. 
RANNÍS hefur efnt til verðlauna fyrir framlag til vísindamiðlunar. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi vísindamiðlunar til samfélagsins til þess m.a. að auka skilning almennings á vísindum, tækniþróun og nýsköpun.  Vísindamiðlunarverðlaun RANNÍS verða veitt einstaklingi fyrir sérstakt framlag til á þessu sviði og var auglýst eftir tilnefningum.  Verðlaunin verða veitt á Vísindavökunnu 22. september 2006.  Meira

 

 

Þátttakendur Heiti rannsóknar
Félagsvísindadeild Háskóla Íslands Sálfærði og mann/þjóðfræði, rannsóknastofa í vinnuvernd
Gagnasetur Háskólans í Reykjavík Mynda-löggur og bófar
Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík Gervigreindur útvarpsmaður
Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík Forritað með Darwin
Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík Það er leikur að læra pastúnsku
Hafrannsóknastofnunin Fiskakvarnir - heill heimur af upplýsingum
Hjartavernd Myndgreining hjá Hjartavernd
Háskóli Íslands Háskóli unga fólksins
Háskólinn á Akureyri - auðlindasvið Hverastrýtur í Eyjafirði - einstök náttúrurundur
Háskólinn á Akureyri - viðskipta-og raunvísindadeild Vetni og bakteríur
Hugvísindadeild Háskóla Íslands "Icelandic online"
Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands Jarðskjálftahermir og myndasýning
Landbúnaðarháskóli Íslands Rannsóknir á áhrifum veðurfars á trjávöxt og kolefnisbindingu á Íslandi
Landspítali háskólasjúkrahús Svefnrannsóknir
Landspítali háskólasjúkrahús Beinþéttnimælingar
Laxfiskar ehf Lífshættir laxa og silunga í sjó, ám og vötnum
Líffræðistofnun Háskóla Íslands Skepnur úr rannsóknastofunni
Líf-Hlaup ehf Þróun lyfjaorma til lyfjagjafar á slímhúð
Lyfjaþróun hf Lyfjagjöf um nef
Marel Litrófsgreining fyrir matvælavinnslu
Náttúrurfræðistofnun Íslands Geitungar - nýir landnemar, ofnæmisviðbrögð og önnur viðbrögð
NimbleGen Systems Inc. DNA-örflögur
ORF Líftækni hf Sameindaræktun - hátækni og náttúruefni
Orkusetur Orkustofnunar Eldneytisnotkun bifreiða
RANNÍS Evrópska rannsóknastarfatorgið
RANNÍS Vísindavaka 2006 í Evrópu
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins Skynfæri sem mælitæki í vísindum
Raunvísindastofnun Háskóla Íslands Hreinherbergi - örtækni
ReykjavíkurAdademían Sauðalitir, pönk og blæbrigði nútímans
Stjörnu-Oddi hf Njósnabúnaður sem njósnar um hegðun dýra neðansjávar
Stofnun Árna Magnússonar Rafræn útgáfa á Konungsbók Eddukvæða 
Undirbúningshópur fyrir Tilraunahús Vísindi á vettvangi
Ungir Vísindamenn - Young Scientist ESB Cuddle me cloths
Veðurstofa Íslands Náttúruöflin vöktuð
Verkfræðideild Háskóla Íslands Örvun útlima með rafskautum.
Verkfræðideild Háskóla Íslands Líkan af stíflu
Verkfræðideild Háskóla Íslands Vélaverkfræði
Vísindamiðlun Háskóla Íslands Undur eðlisfræðinnar
Vísindavefur Háksóla Íslands Leikir og þrautir - spurt og svarað
Össur hf "Bionic Technology by Ossur"
Og sérstaklega fyrir káta krakka:  
Fjölskyldu-og húsdýragarðurinn: Vísindaveröldin Stjörnufræði, efnafræðitilraunir, eðlisfræðitilraunir, "nautsterkur", radarmælingar á boltum, raddsjá og margt, margt fleira skemmtilegt


  • Rannís
<