Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Rannsóknir og þróun, nýsköpun, tölfræði vísinda

10.3.2010

Minnum á umsóknarfrest Rannsóknarnámsjóðs

Frestur til að skila inn umsóknum í Rannsóknarnámsjóð rennur út 15. mars nk. kl. 16:00. Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til rannsóknatengds framhaldsnáms við háskóla eða á ábyrgð háskóla í samvinnu við rannsóknastofnanir og fyrirtæki, bæði í námi á Íslandi og erlendis. Nánar um sjóðinn og umsóknareyðublöð HÉR.

10.3.2010

Umsóknarfrestur í EuroNanoMed

Lýst er eftir umsóknum í EuroNanoMed, en það er ERA-NET sem veitir styrki til rannsóknasamstarfs á sviði örtækni á heilbrigðissviði. Katrín Valgeirsdóttir hefur umsjón með EuroNanoMed hjá Rannís. Nánar hér eða í netfangi katrin@rannis.is

10.3.2010

Ný stjórn Tækniþróunarsjóðs

Iðnaðarráðherra hefur skipað í stjórn Tækniþróunarsjóðs til ársloka 2012. Stjórnina skipa sjö einstaklingar til þriggja ára í senn. Stjórnarformaður er Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP og er hann skipaður af iðnaðarráðherra. Aðrir fulltrúar í stjórn eru:

9.3.2010

Raffréttir Rannís komnar út

Marsútgáfa Raffréttabréfs Rannís er komin út. Hægt er að nálgast fréttabréfið hér. Rafrænt fréttabréf Rannís hóf göngu sína í október 2009 og hér er hægt að sækja eldri útgáfur. Þeir sem vilja fá fréttabréfið sent skrái netfang sitt hér.

Súrefnis- og hjartsláttarnemi hlýtur Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 

 Ásgeir Bjarnason verðlaunahafi NSN2010

Ásgeir Bjarnason hlaut Nýsköpunarverðlaun
forseta Íslands fyrir verkefnið Súrefnis- og
hjartsláttarnemi 

 

Ásgeir Bjarnason hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands sem veitt voru 2. mars sl. Ásgeir stundar meistaranám í heilbrigðisverkfræði í Finnlandi en var nemandi við Háskólann í Reykjavík þegar hann vann að verkefninu.  Leiðbeinendur Ásgeirs voru þeir Sigmar Guðbjörnsson og Hákon Óli Guðmundsson hjá Stjörnu-Odda.  

 

Verðlaunin eru veitt háskólanemum sem unnið hafa framúrskarandi starf við úrvinnslu sumarverkefna sem styrkt eru af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

 

Verkefnið fólst í því að hanna frumgerð súrefnismettunar- og hjartsláttarnema sem nota á við dýrarannsóknir og kanna hvaða vandamál koma upp við smíði og prófun á slíkum tækjum. Lokatakmark verkefnisins var að þróa örsmátt og ígræðanlegt mælitæki fyrir tilraunadýr þar sem einungis er þörf á smávægilegri aðgerð en hefur þann kost að draga mikið úr áhrifum vegna hegðunar dýrsins. Í þessum fyrsta áfanga verkefnisins var lögð áhersla á finna út hvaða rafeindatæknileg vandamál koma upp við notkun á slíkum mælum og hvernig best er að leysa þau. Ásgeir náði vel þeim markmiðum sem lagt var upp með í verkefni sínu og gott betur en það, því niðurstöður úr verkefni hans eru nær raunverulegri vöruþróun en lagt var upp með.  

 

Verkefnið og starf Ásgeirs mun hjálpa þróunarteymi Stjörnu-Odda við að taka næstu skrefin og flýta fyrir vöruþróun og hanna vöru sem er fyrst og fremst ætluð fyrir erlendan markað. Þar með hefst leiðangur verkefnisins í að þróa seljanlega vöru til útflutnings, sem spennandi verður að fylgjast með í framhaldinu. Verkefni Ásgeirs er þannig komið í fyrirmyndarflokk nemendaverkefna með stuðningi Nýsköpunarsjóðs námsmanna sem þróast hafa í fullvaxin rannsóknar- og þróunarverkefni fyrirtækja með vöruþróun og útflutning að leiðarljósi.


Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta