Beint á leiđarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiđstöđ Íslands

Forsíđufréttir

23.7.2010

Vinnuáćtlanir 7.rá fyrir 2011 birtar

Evrópusambandið hefur nú birt allar vinnuáætlanir 7. rannsóknaáætlunar sambandsins fyrir árið 2011. Þar má sjá hvers konar rannsóknarverkefni verða styrkt árið 2011, umsóknarfresti o.fl. Starfsfólk Rannís mun veita frekari upplýsingar eftir 9. ágúst, að loknum sumarleyfum.

20.7.2010

Námskeiđ fyrir ráđgjafa í 7.rá 18. ágúst 2010

Námskeið fyrir alla sem aðstoða vísindamenn, háskóla, fyrirtæki og stofnanir við umsóknargerð í 7. rá verður haldið 18. ágúst 2010 kl. 9:00-15:30 í húsnæði Endurmenntunar Háskóla Íslands við Dunhaga í Reykjavík. Leiðbeinandi Sean McCarthy.

8.7.2010

Dregiđ í happdrćtti Rannsóknavogar Rannís

Ţrír vinningshafar í happdrætti Rannsóknavogar Rannís hafa verið dregnir út og hljóta þeir að launum gjafabréf fyrir fjóra í Borgarleikhúsið á sýningu að eigin vali. Heppnir þátttakendur voru valdir af handahófi úr hópi þeirra sem skiluðu inn svörum fyrir 5. júlí sl.

5.7.2010

Umsóknarfrestur heimkomustyrkja (Reintegration Grants) 7. september

Næsti umsóknarfrestur heimkomustyrkja (Reingration Grants) í Mannauðsáætlun 7. rannsóknaáætlunar (People) verður 7. september 2010. Styrkirnir henta sérstaklega vel þeim sem hafa lokið doktorsgráðu og/eða starfað að rannsóknum utan Evrópu um nokkurra ára skeið.

2.7.2010

Greining á nýjum umsóknum í Rannsóknasjóđ fyrir 2011

Umsóknafrestur í Rannsóknasjóð vegna styrkársins 2011 rann út 1. júní 2010. Alls bárust 248 umsóknir sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Sóknarfjárhæð heldur hins vegar áfram að hækka á milli ára (er nú ríflega 1.600 millj. kr.). Hér má nálgast greiningu á nýjum umsóknum.

30.6.2010

Frábćr árangur Matís í 7. RÁ

Matís hefur nýlega fengið úthlutun úr 7. rannsóknaáætlun ESB til að stýra tveimur stórum rannsóknaverkefnum. Rannís óskar Matís til hamingju með árangurinn. Nánar hér.

30.6.2010

Frammistađa Íslands í nýsköpun 2009

Rannís hefur gefið út samantektina Frammistaða Íslands í nýsköpun 2009 sem byggist á evrópsku stigatöflunni um nýsköpun (European Innovation Scoreboard - EIS) sem greinir frá samanburði á frammistöðu Evrópuþjóða í nýsköpun. Ritið má nálgast hér.

25.6.2010

Samstarf Íslands, Svíţjóđar og Eistlands í rafrćnni stjórnsýslu

Í haust verður lýst eftir umsóknum um samstarfsnet á sviði rafrænnar stjórnsýslu milli Íslands, Svíþjóðar og Eistlands.

24.6.2010

Úthlutun úr Rannsóknarnámssjóđi 2010

Stjórn Rannsóknarnámssjóðs hefur lokið við úthlutun fyrir árið 2010. Að þessu sinni var um 95 milljónum úthlutað til 26 verkefna. Listi yfir úthlutun hér.

23.6.2010

Rannsóknavogin farin af stađ

Rannís hefur nýverið opnað fyrir Rannsóknavogina, sem er könnun send til íslenskra fyrirtækja og stofnana um rannsókna- og þróunarstarfsemi þeirra. Hafa þátttakendur í úrtakinu að þessu sinni fengið tölvupóst með beiðni um þátttöku. Þátttakendur eru hvattir til að hafa samband við starfsfólk Rannís ef nánari skýringa er óskað um tilgang og innihald könnunarinnar.

Fréttasafn


Slóđ:

Forsíđa » Forsíđa » Fréttir

Mynd


Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta