Forsíðufréttir
23.12.2009
Námskeið í fjármálastjórnun Evrópuverkefna, 21. janúar 2010
Fimmtudaginn 21. janúar 2010 mun RANNÍS standa fyrir námskeiði í fjármálastjórnun Evrópuverkefna. Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Simon Walker og John Stringer frá ráðgjafarfyrirtækinu Berkley Associates. Námskeiðið fer fram á Grand hóteli Reykjavík, Sigtúni 38, milli kl. 9.00 og 17.00.
22.12.2009
Jólahald á Rannís
Skrifstofan verður opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 12:30 - 16:00, 28. - 30. desember.
Lokað verður á aðfangadag og gamlársdag.
21.12.2009
Ný tölfræði um doktorsmenntun
Nýja tölfræði um doktorsmenntun er nú að finna í Norbal gagnabankanum. Þar gefur að líta tölfræði um útskrifaða doktora og doktorsnema á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum. Rannís hafði umsjón með gagnasöfnun um útskriftir Íslendinga frá íslenskum og erlendum háskólum og doktorsnemum í íslenskum háskólum.
7.12.2009
Norrænar öndvegisrannsóknir - loftslag, umhverfi og orka
Öndvegisrannsóknaráætlunin (Topforskningsinitiativet- TFI) er samnorrænt átak sem snýr að loftslagi, umhverfi og orku. Markmiðið er að með því að gera bæði rannsóknastofnanir og atvinnulíf þátttakendur, og með því að tengja þá bestu á sínu sviði saman, geti Norðurlöndin lagt sitt af mörkum við að leysa loftlagsvanda heimsins. Nokkrir umsóknarfrestir eru í byrjun árs.
3.12.2009
Tækniþróunarsjóður úthlutar til 28 verkefna
Alls bárust 105 umsóknir í Tækniþróunarsjóð nú í haust. Stjórn sjóðsins ákvað á fundi sínum 2. desember 2009 að bjóða 28 verkefnisstjórum að ganga til samninga.
23.11.2009
Málfundir um háskólamál og rannsóknir 26. nóv og 27. nóv
Mennta- og menningarmálaráðuneytið með Vísinda- og tækniráði og Rannsóknastofu um háskóla stendur fyrir málfundum veturinn 2009 - 2010 um framtíð háskóla og rannsókna. Markmiðið er að vinna að sameiginlegum skilningi á aðstæðum háskóla og rannsóknastofnana í samfélagi okkar og móta sýn um uppbyggingu og samstarf menntunar og rannsókna í landinu. Fimmtudaginn 26. nóvember er hádegisfyrirlestur í Þjóðmenningarhúsinu. Föstudaginn 27. nóvember er fundur í Norræna húsinu um gæðaeftirlit kennslu og rannsókna í háskólum.
17.11.2009
Loftslagsbreytingar og freðhvolfið
Norrænar öndvegisrannsóknir auglýsa eftir umsóknum á sviði loftslagsbreytinga og freðhvolfsins. Markmið rannsóknanna er að auka skilning á samspili loftslagsbreytinga og freðhvolfsins. Freðhvolfið er veigamikill hluti af Norðurlöndum en freðhvolf vísar til vatns í föstu formi, t.d. í freðmýrum og jöklum.
12.11.2009
Vísindi, árangur og fjármögnun
Rannís efndi til ráðstefna á Hótel Grand þriðjudaginn 3. nóvember 2009 til að kynna umræðu um árangur sem grundvöll fyrir fjármögnun vísinda. Gunnar Sivertsen, sérfræðingur frá NIFU-STEP í Noregi, flutti erindi um „norska líkanið" sem hefur að markmiði að mynda grundvöll fyrir fjármögnun vísinda.
11.11.2009
Hugvísindaráðstefna í Berlín
Áskoranir hugvísinda verða til umræðu á ráðstefnu í Berlín 14. - 15. desember. Ráðstefnan er skipulögð af HERA sem er skammstöfun fyrir Humanities in the European Research Area. Meginverkefni HERA er að festa í sessi hugvísindi í Evrópska rannsóknasvæðinu og efla stöðu hugvísinda innan rammáætlunar Evrópusambandins.
4.11.2009
Norðurslóðakynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 10. og 11. nóv
Í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 LAVA09 verða fjölbreytt verkefni sem Ísland tekur þátt í kynnt í Ráðhúsi Reykjavíkur. Opnunartími er 10. nóv. kl. 12:00 - 18:00 og 11. nóvember kl. 10:00 - 18:00 og er sýningin öllum opin. Verkefnin eru m.a. á sviðum viðbragða við loftslagsbreytingum, menningartengdrar ferðaþjónustu, heilsugæslu, fiskeldis, verslunar, veiða, handverks, viðbragða við stórslysum, almenningssamgangna, nýtingu trjáviðar, endurnýjanlegra orkugjafa, öldrunarþjónustu, vegagerðar og skapandi greina. Á hluta sýningarinnar verður „lifandi vinnustofa" skapandi frumkvöðla sem leggja aukið gildi til valinna NPP verkefna.


English




