Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

31.1.2009

HERA auglýsir styrki

HERA (Humanities in the European Research Area) er samstarf 13 stofnana sem fjármagna rannsóknir í hugvísindum. Búið er að opna fyrir umsóknir á tveimur rannsóknasviðum, annars vegar “Cultural Dynamics: Inheritance and Identity” og hins vegar “Humanities as a Source of Creativity and Innovation”. Umsóknarfrestur er til 7. apríl. Nánari upplýsingar um áætlunina má nálgast á heimasíðu HERA.

23.1.2009

Vísinda- og tæknistefna - fundur 28. janúar í Nýja Kaupþingi

Vísindanefnd og tækninefnd boða til opins fundar um mótun nýrrar vísinda- og tæknistefnu miðvikudaginn 28. janúar kl. 15:00 - 17:30 í Nýja Kaupþingi.

21.1.2009

Rannsóknasjóður 2009: Úthlutun til nýrra verkefna

Stjórn Rannsóknasjóðs hefur lokið við úthlutun til nýrra rannsóknaverkefna fyrir árið 2009; um 314 milljónum króna var úthlutað. Þrjár tegundir styrkja voru í boði: öndvegisstyrkir, rannsóknastöðustyrkir og verkefnastyrkir. Alls bárust 237 umsóknir í Rannsóknasjóð að þessu sinni og var 51 þeirra styrkt eða 21,5% (fjöldi). Sótt var um ríflega 1,3 milljarða króna en um 314 milljónum króna veitt eða 23,8% (upphæð). Meðalupphæð umsókna var um 5,5 milljónir króna en meðalupphæð styrkja nú er ríflega 6,1 milljón króna. Úthlutunina ásamt nánari upplýsingum má nálgast hér.

19.1.2009

Opnir fundir um vísinda- og tæknistefnu

Vísindanefnd og tækninefnd boða til opinna funda um mótun nýrrar vísinda- og tæknistefnu í Nýja Kaupþingi banka hf., Borgartúni 19, Reykjavík. Fundir verða dagana 21. janúar, 28. janúar og loks 4. mars.

19.1.2009

Rannís á Suðurnesjum

Rannís verður með kynningu á stuðningi við rannsóknir, alþjóðasamstarf og nýsköpun í Virkjun, miðstöð fólks í atvinnuleit, á Vellinum fimmtudaginn 22. janúar kl. 16:30.

Fyrir helgi sóttu fulltrúar Rannís Akureyri heim og kynntu Eyfirðingum og nærsveitarmönnum starfsemina og hvernig hún gæti nýst fræðimönnum, frumkvöðlum og fyrirtækjum.

12.1.2009

Evrópusamvinna á Háskólatorgi 15. janúar 2009

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 15. janúar 2009 kl. 15-18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Sameiginleg upplýsingasíða verður einnig opnuð á slóðinni www.evropusamvinna.is

12.1.2009

Nýjar áherslur Tækniþróunarsjóðs

Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur skilgreint nýjar áherslur og býður þrjá nýja styrkjaflokka í ár: Öndvegisstyrki, frumherjastyrki og brúarstyrki þar sem lögð er áhersla á uppbyggingu innviða. Að auki eru boðnir hefðbundnir verkefnisstyrkir. Umsóknarfrestur í Tækniþróunarsjóð er 16. febrúar. Sérstakur umsóknarfrestur er fyrir öndvegisstyrki, 2. mars.
Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<