Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

29.10.2009

Doktorsnám við sameindalíffræðistofnun Evrópu

Í boði er doktorsnám við EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu.  EMBL býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði og skyldum greinum og geta Íslendingar sótt um námsdvöl við stofnunina.  Nemendur sem teknir eru inn í námið fá framfærslustyrk á meðan á námi stendur og er öll aðstaða til fyrirmyndar, m.a. góð aðstaða fyrir fjölskyldufólk og leikskóli á staðnum. Umsókn þarf að skrá fyrir 1. desember næstkomandi. 

21.10.2009

Þjóðarspegill í tíunda sinn

Þjóðarspegillinn X 2009, tíunda félagsvísindaráðstefna Háskóla Íslands, verður haldin af félags-og mannvísindadeild, félagsráðgjafardeild, hagfræðideild, lagadeild, sálfræðideild, stjórnmálafræðideild og viðskiptafræðideild í Lögbergi, Háskólatorgi og Odda föstudaginn 30. október frá klukkan 09:00 til 17:00. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.

8.10.2009

Raffréttir Rannís

Umsóknir í Tækniþróunarsjóð, fjöldi doktora, fyrsti fundur nýs Vísinda- og tækniráðs og rannsóknarpeningar á fjárlögum eru meðal efnis á í raffréttabréfi Rannís fyrir október.

8.10.2009

Tvöfalt fleiri konur ljúka doktorsnámi

Árið 2008 luku 54 Íslendingar doktorsnámi hér á landi og erlendis, 25 konur og 29 karlar. Þetta er nokkuð svipaður fjöldi og á hinum síðari árum en árið 2007 luku 48 doktorsnámi og árið 2006 voru doktorsútskriftirnar 58.

Um tvöfalt fleiri konur ljúka nú doktorsprófi á ári hverju en fyrir 10-15 árum. Árið 1990 voru konur 18% útskrifaðra meðan þær voru 46% útskrifaðra árið 2008. Frá upphafi talninga hefur fjölgað hlutfallslega mjög í hópi kvenna og virðist sem að ákveðnum toppi hafi verið náð árið 2005 þegar konur voru 60% útskrifaðra doktora.  Síðan hafa karlar mælst í nokkrum meirihluta útskrifaðra doktora.

7.10.2009

Umhverfisþing 9. október

Umhverfisráðherra boðar til VI. Umhverfisþings dagana 9.-10. október 2009. Þingið fer fram á Hótel Hilton Reykjavík Nordica. Sjálfbær þróun verður aðalumfjöllunarefni þingsins að þessu sinni. Kynntar verða tillögur að nýjum áherslum stjórnvalda á sviði sjálfbærrar þróunar næstu árin. Einnig verður kynnt ný skýrsla umhverfisráðherra um stöðu og þróun umhverfismála.

Þátttaka er ókeypis en gestum þingsins gefst kostur á að kaupa hádegisverð á hótelinu föstudaginn 9. október.

Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<