Forsíðufréttir
23.11.2009
Málfundir um háskólamál og rannsóknir 26. nóv og 27. nóv
Mennta- og menningarmálaráðuneytið með Vísinda- og tækniráði og Rannsóknastofu um háskóla stendur fyrir málfundum veturinn 2009 - 2010 um framtíð háskóla og rannsókna. Markmiðið er að vinna að sameiginlegum skilningi á aðstæðum háskóla og rannsóknastofnana í samfélagi okkar og móta sýn um uppbyggingu og samstarf menntunar og rannsókna í landinu. Fimmtudaginn 26. nóvember er hádegisfyrirlestur í Þjóðmenningarhúsinu. Föstudaginn 27. nóvember er fundur í Norræna húsinu um gæðaeftirlit kennslu og rannsókna í háskólum.
17.11.2009
Loftslagsbreytingar og freðhvolfið
Norrænar öndvegisrannsóknir auglýsa eftir umsóknum á sviði loftslagsbreytinga og freðhvolfsins. Markmið rannsóknanna er að auka skilning á samspili loftslagsbreytinga og freðhvolfsins. Freðhvolfið er veigamikill hluti af Norðurlöndum en freðhvolf vísar til vatns í föstu formi, t.d. í freðmýrum og jöklum.
12.11.2009
Vísindi, árangur og fjármögnun
Rannís efndi til ráðstefna á Hótel Grand þriðjudaginn 3. nóvember 2009 til að kynna umræðu um árangur sem grundvöll fyrir fjármögnun vísinda. Gunnar Sivertsen, sérfræðingur frá NIFU-STEP í Noregi, flutti erindi um „norska líkanið" sem hefur að markmiði að mynda grundvöll fyrir fjármögnun vísinda.
11.11.2009
Hugvísindaráðstefna í Berlín
Áskoranir hugvísinda verða til umræðu á ráðstefnu í Berlín 14. - 15. desember. Ráðstefnan er skipulögð af HERA sem er skammstöfun fyrir Humanities in the European Research Area. Meginverkefni HERA er að festa í sessi hugvísindi í Evrópska rannsóknasvæðinu og efla stöðu hugvísinda innan rammáætlunar Evrópusambandins.
4.11.2009
Norðurslóðakynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 10. og 11. nóv
Í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 LAVA09 verða fjölbreytt verkefni sem Ísland tekur þátt í kynnt í Ráðhúsi Reykjavíkur. Opnunartími er 10. nóv. kl. 12:00 - 18:00 og 11. nóvember kl. 10:00 - 18:00 og er sýningin öllum opin. Verkefnin eru m.a. á sviðum viðbragða við loftslagsbreytingum, menningartengdrar ferðaþjónustu, heilsugæslu, fiskeldis, verslunar, veiða, handverks, viðbragða við stórslysum, almenningssamgangna, nýtingu trjáviðar, endurnýjanlegra orkugjafa, öldrunarþjónustu, vegagerðar og skapandi greina. Á hluta sýningarinnar verður „lifandi vinnustofa" skapandi frumkvöðla sem leggja aukið gildi til valinna NPP verkefna.


English




