Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

27.3.2009

Heilsa og hagsæld með nýsköpun - ráðstefna 6. apríl

Boðað er til morgunverðarráðstefnu 6. apríl á Grand hótel þar sem kynntar verða niðurstöður úttektar starfshóps á aðstæðum til nýsköpunar í tengslum við heilbrigðisþjónustu og leiðum til að auka verðmætasköpun og bæta þjónstu. Á ráðstefnunni verður tugur framsögumanna sem fjalla um viðfangsefnið frá ólíkum sjónarhornum. Forstjóri vísinda- og nýsköpunardeildar OECD ræðir nýja rannsókn á nýsköpun í heilbrigðisgeiranum.

24.3.2009

Viðskiptasetrið Eyrin á Ísafirði – laus aðstaða í sumar

Í viðskiptasetrinu Eyrinni á ísafirði er aðstaða fyrir 4-6 frumkvöðla.  Markmiðið með viðskiptasetrinu er að skapa frumkvöðlum þekkingarumhverfi , aðstöðu og umgjörð til að vinna að nýsköpun og veita þeim faglega þjónustu og stuðning við framgang hugmynda sinna.  Í sumar býðst námsmönnum aðstaða á setrinu endurgjaldslaust sem eru að vinna verkefnum tengd nýsköpun eða rannsóknum.

20.3.2009

Almannatryggingar: Hlutverk og samspil við önnur bótaúrræði - lok verkefnis

Markmiðið var í fyrsta lagi að kortleggja íslenskan bótarétt, almannatryggingakerfið og samspil bótakerfa. Í öðru lagi átti að greina réttarstöðu bótaþega og hvort íslenskur bótaréttur væri á réttri leið út frá sjónarhóli bótaþega og hugmyndum um réttaröryggi.
Verkefnisstjóri var Guðmundur Sigurðsson, Háskólanum í Reykjavík.

13.3.2009

Evrópusamvinna kynnt á Norðurlandi

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi:

  • Sauðárkróki - Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, miðvikudaginn 18. mars kl. 10-13
  • Akureyri - Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, Skipagötu 9, miðvikudaginn 18. mars kl. 16-18
  • Húsavík - Hvalasafninu, fimmtudaginn 19. mars kl. 10-14
Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<