Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

21.5.2009

Nýsköpunarsjóður námsmanna fær aukið fé - umsóknarfrestur 3. júní

Katrín Jakobsdóttir, ráðherra mennta- og menningarmála, og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, hafa styrkt Nýsköpunarsjóð námsmanna um samtals 15 milljónir króna. Um er að ræða fimm milljónir frá ráðuneyti mennta- og menningarmála og tíu milljónir frá iðnaðarráðuneyti.

18.5.2009

Úthlutun úr Tækjasjóði 2009

Á fundi mánudaginn 18. maí úthlutaði stjórn Tækjasjóðs 34 styrkjum til tækjakaupa. Alls bárust 59 umsóknir og var sótt um 388 milljónir króna. Sjá úthlutun hér.

13.5.2009

Marorka gerir stóran samning við Kongsberg

Marorka hefur gert sinn stærsta samning til þessa við norska fyrirtækið Kongsberg. Kongsberg er einn stærsti framleiðandi brúarkerfa í heiminum og setur fyrirtækið upp brúarkerfi í 350-400 skip á ári. Samkvæmt samningnum verður Maren orkustjórnunarkerfi Marorku sett upp í öllum brúarkerfum Kongsberg og felur samningurinn því í sér verulega aukningu á útbreiðslu Maren kerfisins.

7.5.2009

Úthlutun Rannsóknastyrkja Bjarna Benediktssonar 2009

Úthlutunarnefndir sjóðsins Rannsóknastyrkir Bjarna Benediktssonar hafa úthlutað styrkjum til rannsókna á lögfræði og sagnfræði fyrir árið 2009.

 

6.5.2009

Upplýsinga- og samskiptatækni - kynningarfundur 8. maí

Kynningarfundur á vegum Rannís um rannsóknastyrki úr 7. rannsóknaáætlun ESB til upplýsinga- og samkiptatækni verður haldinn á Grand hótel föstudaginn 8. maí kl. 9:00 - 11:00

Markmið áætlunarinnar er að bæta samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs og að skapa ramma um framtíðarþróun upplýsinga- og samskiptatækni til að mæta þörfum þjóðfélagsins og hagkerfisins. Upplýsinga- og samskiptatækni er kjarni þekkingarþjóðfélagsins og með starfi og styrkjum áætlunarinnar verður rennt styrkari stoðum undir vísinda- og tæknigrunn Evrópu og tryggt verði að hún verði í forystu á þessu sviði.

Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<