Forsíðufréttir
30.6.2009
Darwinráðstefna á Spáni í haust
Evrópska rannsóknastofnunin (European Science Foundation) í samvinnu við COST boðar til rannsóknaráðstefnu um þróunarkenningu Darwins undir yfirskriftinni Darwin and Evolution: Nature-Culture Interfaces. Ráðstefnan er haldin á Spáni 15-20 september í haust. Skilafrestur á umsókn og úrdrætti er 3. júlí.
26.6.2009
Styrkir til örlíftækni - nanomedicine
Rannís auglýsir eftir umsóknum í EuroNanoMed samstarfsverkefni innan 7RÁ ESB.
Íslenskir verkefnahlutar verða styrktir af Tækniþróunarsjóði og skulu umsækjendur skila sérumsókn til Tækniþróunarsjóðs jafnframt umsókn í heildarverkefnið. Umsóknafrestur Tækniþróunarsjóðs og EuroNanoMed er 1. September 2009. EuroNanoMed er ERA-net samstamstarf rannsóknasjóða í Evrópu um að styrkja fjölþjóðleg samstarfsverkefni á sviði „nanomedicine".
18.6.2009
Rannsóknaþing 1. júlí
Rannsóknaþing verður haldið 1. júlí kl. 9:00 á Grand hótel. Á þinginu verða jafnframt veitt hvatningarverðlaun Vísinda og tækniráðs. Dagskrá.
16.6.2009
Úthlutun úr Rannsóknarnámssjóði 2009
Stjórn Rannsóknarnámssjóðs hefur lokið við úthlutun til nýrra verkefna fyrir árið 2009; 94 milljónum króna var úthlutað til bæði doktors- og meistaraverkefna.
Alls bárust 109 umsóknir um almennan styrk úr Rannsóknarnámssjóði að þessu sinni og voru 25 þeirra styrktar eða 22,9% (fjöldi). Sótt var um röskar 563 milljónir króna en um 94 milljónum króna var veitt eða 16,8% (upphæð). Meðalupphæð umsókna var um 5,1 milljón króna en meðalupphæð styrkja nú er rétt um 3,8 milljónir króna.
16.6.2009
Úthlutun úr Tækniþróunarsjóði
Stjórn Tækniþróunarsjóðs ákvað á fundi sínum í dag 16. júní hvaða verkefnisstjórum er boðið til samninga um stuðning. Umsóknir voru óvenju margar að þessu sinni, um þreföldun, og því hefur ákvörðun um úthlutun tekið lengri tíma en áður.
Hér er listi yfir almenn verkefni sem hlutu stuðning og hér yfir öndvegisverkefni.
10.6.2009
Aukaúthlutun Nýsköpunarsjóðs námsmanna
Umsóknarfrestur fyrir aukaúthlutunina rann út 3. Júní sl. Alls bárust 250 umsóknir, en stjórn sjóðsins ákvað að styrkja 43 verkefni (17,2%). Alls 60 nemar munu vinna að verkefnunum og hljóta samtals 102 mannmánuði í styrk.
Styrkirnir eru eins og áður veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja. Umsóknir um styrki voru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein.


English




