Forsíðufréttir
26.8.2009
Norræna velferðarsamfélagið - styrkir til doktorsnema og nýdoktora
Norrænt öndvegissetur um norræna velferðarsamfélagið, sögu þess og framtíðarhorfur, auglýsir lausa til umsóknar styrki til doktorsnema og nýdoktora. Styrkirnir er veittir til 3 - 12 mánaða. Umsóknarfrestur er til 25. september.
21.8.2009
Vísindavaka 2009
Vísindavaka 2009 verður haldin föstudaginn 25. september. RANNÍS, stendur fyrir Vísindavöku en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu í tengslum við Dag vísindamannsins. Markmiðið með framtakinu er að færa vísindin nær almenningi, kynna manneskjurnar á bak við vísindin og vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi. Verður það gert með lifandi kynningum og boðið upp á skemmtilega og fræðandi viðburði fyrir alla fjölskylduna. Allar vísindagreinar eru kynntar á Vísindavöku, hugvísindi jafnt sem raunvísindi. Heimasíða Vísindavöku er á www.rannis.is/visindavaka
16.8.2009
Auglýst er eftir umsóknum í Rannsóknasjóð
Auglýst er eftir umsóknum í Rannsóknasjóð fyrir styrkárið 2010. Umsóknarfrestur er til 1. október 2009.
10.8.2009
Auglýst eftir umsóknum í flestar undiráætlanir 7. Rá.
Auglýst hefur verið eftir umsóknum í eftirfarandi undiráætlanir 7. Rannsóknaáætlunar ESB: Heilbrigðisvísindi; matvæli, landbúnaður, sjávarútvegur og líftækni; upplýsinga- og samskiptatækni; örtækni, efnistækni og ný framleiðslutækni; orka; umhverfi; samgöngur; félags-, hag- og hugvísindi; öryggi; geimtækni; hugmyndir; innviðir; rannsóknir í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja; þekkingarsvæði; færni vaxandi svæða til rannsókna og þróunar; vísindi í samfélaginu; alþjóðlegt samstarf.
10.8.2009
Veðurfarsbreytingar - norrænir samstarfsstyrkir
Norrænt rannsóknarátak, Topforskningsinitiativet, auglýsir eftir umsóknum um þverfaglegar rannsóknir á sviði veðurfarsbreytinga og aðlögunar að þeim. Ætlunin er að styrkja alls tíu samstarfsverkefni, hvert með allt að 300 þús. norskra króna á ári í þrjú ár.


English




