Forsíðufréttir
29.9.2009
Ný fagráð Rannsóknasjóðs
Vísindanefnd Vísinda- og tækniráðs hefur skipað fagráð Rannsóknasjóðs til næstu tveggja ára. Fagráðin hafa það hlutverk að vera ráðgefandi fyrir stjórn Rannsóknasjóðs við úthlutanir úr sjóðnum. Sjá má skipun fagráðanna
hér.
29.9.2009
Vísindavaka slær í gegn
Aldrei hafa fleiri gestir sótt Vísindavöku eins og síðasta föstudag, en alls sóttu 2.790 gestir vökuna til að kynna sér viðfangsefni vísindamanna frá um 70 sýnendum. Rannís vill þakka sýnendum, sem lögðu á sig ómælda vinnu til að vera með, styrktaraðilum og samstarfsaðilum fyrir frábært samstarf. Myndir af Vísindavöku verða settar inn á vefinn innan tíðar. Hlökkum til að sjá ykkur á Vísindavöku 2010!
29.9.2009
Bandalag þýðenda og túlka verður fimm ára miðvikudaginn 30. september. Í tilefni af afmælinu verður haldið opið málþing um þýðingar og túlkun. Þar verða reifuð ýmis atriði sem lúta að starfsvettvangi félagsmanna, s.s. gæði bókmenntaþýðinga, þýðingarminni og túlkun í alþjóðlegu umhverfi. Seinni hluti þingsins verður helgaður menntun og ráðningu þýðenda ef til Evrópusambandsaðildar kemur. Yfirmaður útvistunarmála hjá þýðingamiðstöð Evrópusambandsins kemur sérstaklega til að kynna starfsemi miðstöðvarinnar.
Afmælisþingið verður haldið á Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu milli kl. 13 og 17 miðvikudaginn 30. september.
28.9.2009
Mánudaginn 28. september stóð Rannís að kynningarfundi um þátttökutækifæri Íslendinga í þjálfunarnetum innan Mannauðsáætlunar ESB. Um 35 manns mættu á fundinn. Aðalfyrirlesarari var Dr. Kaisa Hellevuo frá Evrópusambandinu.
25.9.2009
Til hamingju með daginn vísinda- og fræðimenn!
Vísindavaka er í dag föstudaginn 25. september í tilefni af Degi evrópska vísindamannsins og er hún haldin á sama tíma í helstu borgum Evrópu. Vísindavakan verður í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsinu kl. 17-22. Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, opnar Vísindavöku og afhendir verðlaun í teiknisamkeppni barna og síðan hefjast atriði á sviði þar sem Sprengjugengið, Vísindavefurinn og Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness mæta meðal annarra. Sýnendur hafa aldrei verið fleiri og mun fjöldi gesta sækja Vísindavökuna þannig að búast má við þröng á þingi! Það er greinilega mikill hugur í vísinda- og fræðimönnum þjóðarinnar og mikil gróska í rannsókna- og nýsköpunarstarfi.
24.9.2009
RANNÍS mun halda opinn kynningarfund um þjálfunarnet mánudaginn 28. september með þátttöku fulltrúa Evrópusambandsins. Fundurinn verður haldinn milli kl. 10.00 og 12.00 í húsnæði Endurmenntunar HÍ að Dunhaga 7.
24.9.2009
Tvö Vísindakaffi verða haldin á Norðurlandi í kvöld í tengslum við Vísindavöku 2009. Vísindakaffið á Akrueyri ber yfirskriftina: "Mun Eyjafjörður verða helsti vaxtarbroddur Íslands?" og er haldið á Friðriku V., og á Sauðárkróki er titill Vísindakaffisins "Er vit í vísindum á landsbyggðinni? - Hvert er förinni heitið?" en það er haldið á Kaffi Krók.
23.9.2009
Harðsnúin klíka föðurlandssvikara á Vísindakaffi í kvöld
Umræðan um hugsanlega aðild Íslands að ESB verður í brennidepli á Vísindakaffi í kvöld, en þá mun Magnús Árni Magnússon forstöðumaður Félagsvísindastofnunar HÍ fjalla um hvernig umræðan hefur þróast og hvernig orðræða er notuð í því samhengi. Hann mun líta til umræðunnar á Möltu, en þegar þessi litla eyþjóð gekk inn í ESB fyrir nokkrum árum, einkenndist umræðan um margt af svipuðum aðferðum og hér. Harðsnúin klíka föðurlandssvikara á Vísindakaffi í kvöld kl. 20.00-21.30 á Súfistanum í Iðuhúsinu!
22.9.2009
Neytendasálfræði krufin til mergjar í Vísindakaffi í kvöld
Annað Vísindakaffið er í kvöld, 22. sept. kl. 20:00-21:30 á Súfistanum, Iðuhúsinu Lækjargötu. Dr. Valdimar Sigurðsson frá viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík fjallar um neytendasálfræði og markaðssetningu matvæla í verslunum. Er eitthvað að marka neytendur? Þetta er efni sem snertir okkur öll. Þiggið kaffiboð Rannís og mætið á Vísindakaffi í kvöld!
21.9.2009
Sturlunga og nútíminn á fyrsta Vísindakaffinu
Fyrsta Vísindakaffið er í kvöld, mánudag 21. sept. kl. 20:00-21:30 á Súfistanum, Iðuhúsinu Lækjargötu 2. Dr. Guðrún Nordal forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar fjallar um hvernig fíkn ungra karlmanna í völd og fé réði miklu um fall í íslensku samfélagi í tíð Sturlunga. Þetta þykir mörgum ríma óþægilega við fjölda atburða í nútímanum. Alvarlegt málefni með léttum undirtóni!