Beint á leiđarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiđstöđ Íslands

Forsíđufréttir

29.1.2010

Rannsóknasjóđur - Breyttur umsóknarfrestur

Vakin er athygli á breyttum umsóknarfresti í Rannsóknasjóð fyrir styrkárið 2011. Nýr umsóknarfrestur verður þriðjudaginn 1. júní 2010 en undanfarin ár hefur fresturinn verið 1. október (sá umsóknarfrestur fellur því niður við þessar breytingar). Reglur og leiðbeiðbeiningar til umsækjenda og umsóknareyðublað verður birt eigi síðar en 6 vikum fyrir auglýstan umsóknarfrest.

27.1.2010

Málţing um fjármögnun háskóla 29. janúar 2010

Mennta- og menningarmálaráðuneytið með Vísinda- og tækniráði og Rannsóknastofu um háskóla stendur fyrir málfundum veturinn 2009 - 2010 um framtíð háskóla og rannsókna.

22.1.2010

Úthlutun úr Rannsóknasjóđi 2010

Stjórn Rannsóknasjóðs hefur lokið við úthlutun til nýrra rannsóknaverkefna fyrir árið 2010; um 270 milljónum króna var úthlutað.

22.1.2010

Tćkniţróunarsjóđur - styrkir til nýsköpunar

Auglýst er eftir umsóknum í Tækniþróunarsjóð. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2010. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar hér.

22.1.2010

Tćkniţróunarsjóđur - styrkir til nýsköpunar

Auglýst er eftir umsóknum í Tækniþróunarsjóð. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2010. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar hér.

16.1.2010

Tćkjasjóđur - Styrkir til rannsóknastofnana

Auglýst er eftir umsóknum í Tækjasjóð. Umsóknarfrestur er til 1. mars 2010.

16.1.2010

Rannsóknastyrkir Bjarna Benediktssonar

Auglýst er eftir umsóknum um rannsóknastyrki úr sjóði til minningar um Bjarna Benediktsson lagaprófessor og forsætisráðherra. Umsóknarfrestur er til 1. mars 2010.

14.1.2010

Skipun nýrrar stjórnar Rannsóknarnámssjóđs

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur skipað nýja stjórn Rannsóknanámssjóðs. Skipunartími er 1. desember 2009 - 1. desember 2012. Hér er tengill í upplýsingar um skipun nýrrar stjórnar sjóðsins.

Evrópusamvinna á Háskólatorgi 14. janúar 2010

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 15-18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs.

12.1.2010

Öndvegisrannsóknastyrkir á Norđurlöndum

Rannís og Nýsköpunarmiðstöð Íslands standa fyrir opnum kynningarfundi um Öndvegisrannsóknaráætlun Norðurlanda (Toppforskningsinitiativet) á sviði loftlags-, orku- og umhverfismála miðvikudaginn 13. janúar. Áætlunin er stærsta samnorræna átakið á þessu sviði nokkru sinni og eru umsóknarfrestir í febrúar og mars. Í áætluninni eru fólgin mikil tækifæri fyrir íslenskt vísindafólk á þessum sviðum. Kynningin er haldin á Grand Hótel Reykjavík kl. 14 - 15:30. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á kjartan@nmi.is.

Málfundir um háskólamál og rannsóknir - Gćđi og fjármögnun rannsókna

Mennta- og menningarmálaráðuneytið með Vísinda- og tækniráði og Rannsóknastofu um háskóla stendur fyrir málfundum um framtíð háskóla og rannsókna. Markmiðið er að vinna að sameiginlegum skilningi á aðstæðum háskóla og rannsóknastofnana í samfélagi okkar og móta sýn um uppbyggingu og samstarf menntunar og rannsókna í landinu. Næsti fundur verður haldinn föstudaginn 15. janúar 13-16 í Norræna húsinu undir yfirskritinni Gæði og fjármögnun rannsókna.

8.1.2010

Styrkir til rannsókna í félagsvísindum og hugvísindum

Norræna samstarfsnefndin í hug- og félagsvísindum (NOS-HS) auglýsir styrkir á svið hug- og félagsvísinda með umsóknarfresti 25. mars 2010. Gert er ráð fyrir 36-48 mánaða rannsóknarverkefnum og er fyrirhugað að veita allt að 6 styrki. Hágmarksfjárhæð hvers styrks er €600.000. Um er að ræða samstarfsverkefni með þátttöku fulltrúa frá háskólum í að minnsta kosti þremur Norðurlandanna. Nánar upplýsingar og umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu NOS-HS.
Fréttasafn

Slóđ:

Forsíđa » Forsíđa » Fréttir

Mynd

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta