Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Forsíðufréttir

31.3.2010

Launasjóður fræðiritahöfunda - umsóknareyðublað komið

Umsóknareyðublað fyrir Launasjóð fræðiritahöfunda er komið á vef Rannís. Umsóknarfrestur er 12. apríl nk. Hér eru tenglar í nánari upplýsingar um sjóðinn og í umsóknareyðublaðið.

29.3.2010

Aukning í útgjöldum til rannsókna og þróunar á Norðurlöndunum

Samkvæmt nýútgefinni tölfræði um rannsóknir og þróunarvinnu á Norðurlöndunum hefur orðið mikil aukning í útgjöldum til þessarar starfsemi frá árinu 2005.  Mesta aukningu í útgjöldum er að finna í Noregi eða um 12% á ári.  Á Íslandi hefur aukningin að jafnaði verið um 11% á ári, í Danmörku 8% og um 6% í Finnlandi og Svíþjóð.

23.3.2010

Vaxtarsproti ársins valinn

Vaxtarsproti ársins verður valinn í fjórða sinn í apríl 2010. Vaxtarsprotinn, er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins/SSP, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknamiðstöðvar Íslands um val á vaxtarsprota ársins.  Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukin áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. 

20.3.2010

Rannsóknasjóður - breyttur umsóknarfrestur

Vakin er athygli á breyttum umsóknarfresti í Rannsóknasjóð fyrir styrkárið 2011. Nýr umsóknarfrestur verður 1. júní 2010.

19.3.2010

Ísland í 14. sæti í nýsköpun

Út er komin Evrópska stigataflan um nýsköpun (European Innovation Scoreboard) sem greinir frá samanburði á frammistöðu aðildaþjóða Evrópusambandsins í nýsköpun auk Króatíu, Serbíu, Tyrklands, Íslands, Noregs og Sviss.  Ísland er í 14. sæti í hópi 33 landa í þessari nýjustu mælingu Evrópusambandsins. 

19.3.2010

Tölfræði Rannsóknasjóðs 2004-2010

Út er komin tölfræði fyrir Rannsóknasjóð 2004-2010. Þar má nálgast upplýsingar um einstök styrkár sem og samantekt yfir starfstíma sjóðsins. Þá er í viðaukum einnig yfirlit yfir þá sem setið hafa í stjórn og fagráðum sjóðsins frá 2004. Úttektina má nálgast með því að smella hér.

18.3.2010

Skýrsla verkefnishóps NordForsk NORIAnet Asia

Út er komin lokaskýrsla NordForsk NORIAnet Asia verkefnishóps um samstarf Norðurlandanna við Indland og Kína á sviði rannsókna. Hana má nálgast í .pdf formi hér . Markmið Asía NORIA-net verkefnisins var að greina þarfir og undirbúa formgerð fyrir sameiginleg rannsóknarverkefni Norðurlandanna í samstarfi við Asíuríki, með áherslu á Indland og Kína.

10.3.2010

Minnum á umsóknarfrest Rannsóknarnámsjóðs

Frestur til að skila inn umsóknum í Rannsóknarnámsjóð rennur út 15. mars nk. kl. 16:00. Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til rannsóknatengds framhaldsnáms við háskóla eða á ábyrgð háskóla í samvinnu við rannsóknastofnanir og fyrirtæki, bæði í námi á Íslandi og erlendis. Nánar um sjóðinn og umsóknareyðublöð HÉR.

10.3.2010

Umsóknarfrestur í EuroNanoMed

Lýst er eftir umsóknum í EuroNanoMed, en það er ERA-NET sem veitir styrki til rannsóknasamstarfs á sviði örtækni á heilbrigðissviði. Katrín Valgeirsdóttir hefur umsjón með EuroNanoMed hjá Rannís. Nánar hér eða í netfangi katrin@rannis.is

10.3.2010

Ný stjórn Tækniþróunarsjóðs

Iðnaðarráðherra hefur skipað í stjórn Tækniþróunarsjóðs til ársloka 2012. Stjórnina skipa sjö einstaklingar til þriggja ára í senn. Stjórnarformaður er Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP og er hann skipaður af iðnaðarráðherra. Aðrir fulltrúar í stjórn eru:

9.3.2010

Raffréttir Rannís komnar út

Marsútgáfa Raffréttabréfs Rannís er komin út. Hægt er að nálgast fréttabréfið hér. Rafrænt fréttabréf Rannís hóf göngu sína í október 2009 og hér er hægt að sækja eldri útgáfur. Þeir sem vilja fá fréttabréfið sent skrái netfang sitt hér.

5.3.2010

Minnum á umsóknarfrest Nýsköpunarsjóðs námsmanna

Minnum á umsóknarfrest Nýsköpunarsjóðs námsmanna, mánudaginn 8. mars nk. Markmið sjóðsins er að veita háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða nema í framhaldsnámi til sumarvinnu við rannsóknaverkefni. Nánar um sjóðinn og umsóknareyðublöð HÉR.

3.3.2010

Reglur og leiðbeiningar Rannsóknarnámssjóðs komnar á ensku

Reglur og leiðbeiningar fyrir Rannsóknarnámssjóð vegna umsóknarfrests 15. mars 2010 eru komnar á heimasíðuna HÉR.

2.3.2010

Vinningshafi Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2010 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 2.  mars. Verkefnið sem hlaut verðlaunin að þessu sinni heitir Súrefnis- og hjartsláttarnemi og vinningshafinn er Ásgeir Bjarnason sem stundar meistaranám í heilbrigðisverkfræði í Finnlandi en var nemandi við Háskólann í Reykjavík þegar hann vann að verkefninu. Leiðbeinendur Ásgeirs voru þeir Sigmar Guðbjörnsson og Hákon Óli Guðmundsson hjá Stjörnu-Odda.
Fréttasafn


Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta