Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

19.4.2010

Rannís auglýsir eftir fólki til starfa

Rannís óskar eftir tveimur starfsmönnum, öðrum á rannsókna- og nýsköpunarsvið og hinum á alþjóðasvið.

16.4.2010

Rannsóknasjóður 2011

Auglýst er eftir umsóknum um nýja styrki úr Rannsóknasjóði fyrir styrkárið 2011. Umsóknafrestur er 1. júní 2010.

16.4.2010

Fyrsta ráðstefna NORIA-net NIRPA um hnattvæðingu og rannsóknastefnumótun

Fyrsta ráðstefna í ráðstefnuröð NORIA-nets NIRPA var haldin í Stokkhólmi 7. og 8. þessa mánaðar. Viðfangsefni ráðstefnunnar var hnattvæðing og stefnumótun á sviði rannsókna út frá norrænu sjónarhorni.

9.4.2010

Umsóknarfrestur Nýsköpunarsjóðs námsmanna framlengdur til 14. apríl

Umsóknafrestur vegna aukafjárveitingar til Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur nú verið framlengdur. Frestur til að skila inn umsóknum er miðvikudagurinn 14. apríl klukkan 16.00. Úthlutun úr sjóðnum mun liggja fyrir í byrjun maí.

8.4.2010

Frammistaða íslenskra fyrirtækja í nýsköpun

Á heimasíðu Rannís má nú sækja umfjöllun um nýsköpun íslenskra fyrirtækja.  Hún er byggð á nýútkominni skýrslu Evrópusambandsins; Evrópsku stigatöflunni um nýsköpun (European Innovation Scoreboard 2009) sem fjallar um stöðu Íslands í nýsköpun í evrópsku samhengi, vöxt undanfarin ár, styrkleika og veikleika. 

8.4.2010

Óskað eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs

Verðlaunin eru árlega veitt vísindamanni sem þykir hafa skarað fram úr snemma á ferlinum og skapað væntingar um mikilvægt framlag í vísindastarfi. Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 12. apríl nk. Verðlaunin eru tvær milljónir króna og verða afhent á Rannsóknaþingi í vor.

6.4.2010

Áhugaverð ráðstefna um orkurannsóknir

European Energy Research ráðstefnan verður haldin 20.-23. apríl í Barcelona á Spáni. Fyrir þá sem hafa áhuga á orkurannsóknum, þá eru nánari upplýsingar hér.

Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<