Forsíðufréttir
27.5.2010
Hvatningarverðlaunin 2010 afhent
Unnur Anna Valdimardóttir dósent við læknadeild og forstöðumaður Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands hlaut Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs fyrir árið 2010 en verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Rannsóknaþingi Rannís á Grand Hótel Reykjavík 27. maí.
21.5.2010
Munið að skrá ykkur!
Minnum á Rannsóknaþing 2010 og afhendingu Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs fimmtudaginn 27. maí nk. Dagskráin hér. Skráning á rannis@rannis.is eða í síma 515 5800.
20.5.2010
Rannsóknaþing og afhending Hvatningarverðlauna 27. maí
Rannís og Vísinda- og tækniráð boða til Rannsóknaþings 2010 þann 27. maí kl. 8:30 - 11:20 á Grand Hótel Reykjavík. Fjöldi áhugaverðra fyrirlestra verður í boði auk þess sem Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs verða afhent ungum vísindamanni. Skráning á rannis@rannis.is eða í síma 515 5800.
17.5.2010
Sex hljóta styrk úr Launasjóði fræðiritahöfunda
Lokið er úthlutun úr Launasjóði fræðiritahöfunda fyrir styrkárið 2010. Alls voru veittir 6 styrkir en meginhlutverk sjóðsins er að auðvelda samningu bóka, og verka í stafrænu formi, til eflingar íslenskri menningu.
15.5.2010
Tíu hljóta styrk úr Rannsóknarsjóði Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haraldar Sigurðarsonar
Lokið er úthlutun úr Rannsóknarsjóði Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar fyrir styrkárið 2010. Alls voru veittir 10 styrkir en markmið sjóðsins er að að efla rannsóknir á korta- og landfræðisögu Íslands og íslenskri bókfræði og stuðla að útgáfu rita um þau efni.
6.5.2010
Þrír hljóta Rannsóknastyrki Bjarna Benediktssonar
Miðvikudaginn 5. maí var þremur styrkjum úthlutað úr sjóðnum Rannsóknastyrkir Bjarna Benediktssonar við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu. Veittir voru þrír styrkir á sviði lögfræði og sagnfræði.
5.5.2010
Vaxtarsprotinn 2010
Nox Medical ehf. hlaut í morgun Vaxtarsprotann 2010 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Fyrirtækið meira en tífaldaði veltu sína milli áranna 2008 og 2009 úr 16,5 m.kr í um 175 m.kr. Fyrirtækin Hafmynd, Menn og Mýs og Valka fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan vöxt á síðasta ári.
4.5.2010
Úthlutun Nýsköpunarsjóðs námsmanna fyrir sumarið 2010
Nýsköpunarsjóði námsmanna bárust alls 603 umsóknir í ár. Stjórn sjóðsins ákvað að styrkja 255 verkefni (alls 823 mannmánuði).
Umsækjendur fá tölvupóst með nánari upplýsingum um styrkveitinguna við fyrstu hentugleika. Vinsamlegast athugið að sum verkefnanna hljóta færri mannmánuði í styrk en sótt var um.
4.5.2010
Fréttabréf aprílmánaðar komið út
Raffréttir Rannís fyrir apríl eru komnar út. Nálgast má fréttabréfið hér en einnig er tilvalið að skrá sig á útsendilistann hér.
3.5.2010
Rannsóknasjóður - kynning 7. maí
Rannís boðar til opinnar kynningar á Rannsóknasjóði í tengslum við næsta umsóknarfrest 1. júní 2010. Kynningin fer fram á Grand Hótel Reykjavík 4. hæð, föstudaginn 7. maí kl. 9:00-11:00. Léttur morgunverður í boði fyrir fundargesti frá 8:45. Skráning á rannis@rannis.is


English




