Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

23.7.2010

Vinnuáætlanir 7.rá fyrir 2011 birtar

Evrópusambandið hefur nú birt allar vinnuáætlanir 7. rannsóknaáætlunar sambandsins fyrir árið 2011. Þar má sjá hvers konar rannsóknarverkefni verða styrkt árið 2011, umsóknarfresti o.fl. Starfsfólk Rannís mun veita frekari upplýsingar eftir 9. ágúst, að loknum sumarleyfum.

20.7.2010

Námskeið fyrir ráðgjafa í 7.rá 18. ágúst 2010

Námskeið fyrir alla sem aðstoða vísindamenn, háskóla, fyrirtæki og stofnanir við umsóknargerð í 7. rá verður haldið 18. ágúst 2010 kl. 9:00-15:30 í húsnæði Endurmenntunar Háskóla Íslands við Dunhaga í Reykjavík. Leiðbeinandi Sean McCarthy.

8.7.2010

Dregið í happdrætti Rannsóknavogar Rannís

Þrír vinningshafar í happdrætti Rannsóknavogar Rannís hafa verið dregnir út og hljóta þeir að launum gjafabréf fyrir fjóra í Borgarleikhúsið á sýningu að eigin vali. Heppnir þátttakendur voru valdir af handahófi úr hópi þeirra sem skiluðu inn svörum fyrir 5. júlí sl.

5.7.2010

Umsóknarfrestur heimkomustyrkja (Reintegration Grants) 7. september

Næsti umsóknarfrestur heimkomustyrkja (Reingration Grants) í Mannauðsáætlun 7. rannsóknaáætlunar (People) verður 7. september 2010. Styrkirnir henta sérstaklega vel þeim sem hafa lokið doktorsgráðu og/eða starfað að rannsóknum utan Evrópu um nokkurra ára skeið.

2.7.2010

Greining á nýjum umsóknum í Rannsóknasjóð fyrir 2011

Umsóknafrestur í Rannsóknasjóð vegna styrkársins 2011 rann út 1. júní 2010. Alls bárust 248 umsóknir sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Sóknarfjárhæð heldur hins vegar áfram að hækka á milli ára (er nú ríflega 1.600 millj. kr.). Hér má nálgast greiningu á nýjum umsóknum.
Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<