Forsíðufréttir
29.9.2010
Upplýsingatækniáætlun 7.rá - kynningarfundur
Mánudaginn 4. október kl. 8:30-10:30 stendur Rannís fyrir kynningarfundi fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér upplýsingatækniáætlun 7. rannsóknaáætlunarinnar. Morten Möller frá framkvæmdastjórn ESB kynnir áætlunina og þjónusta Rannís verður einnig kynnt. Fundurinn verður á Grand Hótel Reykjavík og er morgunmatur í boði fyrir gesti.
27.9.2010
Aldrei fleiri á Vísindavöku
Vísindavaka Rannís 2010 var haldin föstudaginn 24. september sl. og komu 4200 gestir á vökuna. Gestir Vísindavöku fengu tækifæri til að hitta vísindamenn og fræðifólk úr öllum fræðigreinum frá háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum, sem sögðu frá rannsóknum sínum og viðfangsefnum á skemmtilegan og lifandi hátt. Rannís þakkar sýnendum fyrir þeirra framlag og gestum fyrir komuna. Sjáumst á Vísindavöku 2011!
24.9.2010
Til hamingju með daginn vísindamenn!
23.9.2010
Síðasta Vísindakaffið er í kvöld
Hver eru sameiningartákn íslensku þjóðarinnar? Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur verður gestur á Vísindakaffi í kvöld á Súfistanum, Máli og menningu Laugavegi. Einnig verða vísindakaffi á Akureyri, Skagaströnd og á Höfn í Hornafirði í kvöld. Nánar hér.
21.9.2010
Vísindakaffið fer vel af stað
17.9.2010
Vísindakaffi 2010 - dagskráin komin!
Nú er dagskrá Vísindakaffis Rannís komin á vefinn. Vísindakaffikvöldin eru haldin í tengslum við Vísindavöku 2010 - stefnumót við vísindamenn, sem haldin verður í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsinu föstudaginn 24. sept. nk. í tilefni af Degi evrópska vísindamannsins. Látið Vísindakaffið og Vísindavökuna ekki framhjá ykkur fara! Dagskrá Vísindakaffisins hér.
13.9.2010
Lýst eftir umsóknum um samvinnuverkefni í rafrænni stjórnsýslu
7.9.2010
Kynningarfundur - Orkuáætlun 7.rá
6.9.2010
Kynningarfundur Tækniþróunarsjóðs
1.9.2010
Hremming og mælingar einstaks járnseglandi nanókristalls - verkefni lokið í Rannsóknasjóði
Verkefnisstjóri var Snorri Ingvarsson, Raunvísindastofnun Háskólans.


English




