Forsíðufréttir
12.1.2009
Nýjar áherslur Tækniþróunarsjóðs
Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur skilgreint nýjar áherslur og býður þrjá nýja styrkjaflokka í ár: Öndvegisstyrki, frumherjastyrki og brúarstyrki þar sem lögð er áhersla á uppbyggingu innviða. Að auki eru boðnir hefðbundnir verkefnisstyrkir. Umsóknarfrestur í Tækniþróunarsjóð er 16. febrúar. Sérstakur umsóknarfrestur er fyrir öndvegisstyrki, 2. mars.
Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Sjóðnum er heimilt að fjármagna nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs, m.a. með því að:
- styrkja tækniþróun og tengdar rannsóknir í þágu nýsköpunar atvinnulífsins,
- styrkja uppbyggingu sprotafyrirtækja,
- fjármagna átaksverkefni og markáætlanir á einstökum tæknisviðum til að treysta tæknilegar undirstöður atvinnuveganna,
- styrkja lítil verkefni á vegum einstaklinga og smáfyrirtækja sem eru líkleg til að verða atvinnu- og tekjuskapandi og arðbær þrátt fyrir áhættu í upphafi.
Eitt brýnasta verkefnið er að auka fjölbreytni atvinnulífsins og hraða uppbyggingu þekkingar- og hátæknistarfsemi. Stjórn Tækniþróunarsjóðs telur sjóðinn mæta þessum sjónarmiðum með því að skilgreina nýjar áherslur og bjóða öndvegisstyrki í samræmi við hlutverk sjóðsins.
Í ljósi þessa hefur stjórn sjóðsins skilgreint fjóra verkefnaflokka til að ná betur til hins breiða hóps umbjóðenda sinna og til að geta betur sinnt þeirri þörf að markaðshæfar lausnir verði tiltækar fyrr en ella.
Sjá nánar hér.


English




