Forsíðufréttir
16.1.2010
Rannsóknastyrkir Bjarna Benediktssonar
Auglýst er eftir umsóknum um rannsóknastyrki úr sjóði til minningar um Bjarna Benediktsson lagaprófessor og forsætisráðherra. Umsóknarfrestur er til 1. mars 2010.
Veittir verða styrkir árið 2010 til rannsókna á sviði stjórnsýslu- og stjórnskipunarréttar annars vegar og hag- og stjórnmálasögu 20. aldar hins vegar. Úthlutun miðast við faglegt mat á gæðum rannsóknaverkefnis, færni og reynslu umsækjanda til að stunda rannsóknir og aðstöðu hans til að sinna verkefninu.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna hér.


English




