Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

16.1.2010

Tækjasjóður - Styrkir til rannsóknastofnana

Auglýst er eftir umsóknum í Tækjasjóð. Umsóknarfrestur er til 1. mars 2010.

         

Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði til rannsókna. Við úthlutun úr Tækjasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs og eru eftirtalin atriði lögð til grundvallar:

    

  • Að tækin eða búnaðurinn séu mikilvæg fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda.
  • Að fjárfesting í tækjabúnaði sé til uppbyggingar nýrrar aðstöðu sem skapi nýja möguleika til rannsókna eða að tæki tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður og markáætlun um öndvegissetur og klasa styrkir.
  • Að tækin eða búnaðurinn séu staðsett á rannsókna- og háskólastofnunum.
  • Að samstarf verði um nýtingu tækja milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.
  • Að áætlanir um kostnað og fjármögnun á kaupunum séu raunhæfar.
       

Framlag Tækjasjóðs greiðir aðeins hluta kostnaðar við fjárfestinguna.

Nánari upplýsingar um sjóðinn og umsóknareyðublöð er að finna hér.

Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<