Forsíðufréttir
27.1.2010
Málþing um fjármögnun háskóla 29. janúar 2010
Mennta- og menningarmálaráðuneytið með Vísinda- og tækniráði og Rannsóknastofu um háskóla stendur fyrir málfundum veturinn 2009 - 2010 um framtíð háskóla og rannsókna.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið með Vísinda- og tækniráði og Rannsóknastofu um háskóla stendur fyrir málfundum veturinn 2009 - 2010 um framtíð háskóla og rannsókna. Markmiðið er að vinna að sameiginlegum skilningi á aðstæðum háskóla og rannsóknastofnana í samfélagi okkar og móta sýn um uppbyggingu og samstarf menntunar og rannsókna í landinu.
Næsti málfundur verður haldinn föstudaginn 29. janúar kl. 13-16 í Norræna húsinu undir yfirskriftinni Fjármögnun háskóla.
Fundarstjóri: Oddný G. Harðardóttir, formaður menntamálanefndar Alþingis
Dagskrá:
-
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
Ávarp -
Gísli Þór Magnússon, skrifstofustjóri fjármálasviðs mennta- og menningarmálaráðuneytisins
Forsendur og álitamál við fjármögnun háskóla -
Rúnar Vilhjálmsson, prófessor við Háskóla Íslands
Fjármögnun, hagsmunaárekstrar og heilindi í vísindum
Pallborðsumræður
Sjá upplýsingar um málfundina á:


English




