Forsíðufréttir
5.2.2010
Sumarvinna við sjálfstæðar rannsóknir
Nýsköpunarsjóður námsmanna lýsir eftir umsóknum fyrir árið 2010. Umsóknarfrestur er til 8. mars og skulu umsóknir berast fyrir kl. 16:00.
Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða háskólanema í grunn- og meistaranámi í sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni.
- Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja
- Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein
- Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna
- Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna
- Stjórn er heimilt að veita forgang verkefnum taki fyrirtæki eða aðrir aðilar þátt í kostnaði
- Úthlutun liggur fyrir í byrjun apríl 2010
Hverjir geta sótt um?
- Háskólanemar í grunn- og meistaranámi
- Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir
Umsóknir eru rafrænar og ber að sækja um á heimasíðu Rannís, http://www.rannis.is/. Umsóknareyðublöð verða aðgengileg þar aðra vikuna í febrúar og þar er jafnframt að finna reglur og leiðbeiningar varðandi sjóðinn. Nánari upplýsingar veitir Guðný Hallgrímsdóttir, sími 515 5818, netfang gudny@rannis.is.


English




