Forsíðufréttir
5.2.2010
Styrkir úr Rannsóknanámssjóði
Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til rannsóknartengds framhaldsnáms sem stundað er við háskóla eða á ábyrgð hans í samvinnu við rannsóknastofnanir eða fyrirtæki.
Doktorsnemar geta sótt um styrk til allt að þriggja ára en meistaranemar geta sótt um styrk til vinnu að meistaraverkefni í allt að 12 mánuði. Rannsóknarverkefnið skal að minnsta kosti vera 30 einingar (60 ECTS). Við mat á umsóknum er vísindalegt gildi rannsóknarverkefnisins lagt til grundvallar. Að auki er horft til árangurs umsækjanda í námi og rannsóknum, sem og virkni leiðbeinanda.
Við úthlutun 2010 miðast fjárhæð styrkja til doktorsnema við 265 þús. kr. á mánuði og fjárhæð styrkja til meistaranema við 210 þús. kr. á mánuði.
Sé námið stundað við háskóla erlendis skal rannsóknarverkefnið lúta að íslensku viðfangsefni og vísindamaður með starfsaðstöðu á Íslandi taka virkan þátt í leiðbeiningu nemandans. Framlag leiðbeinanda hér á landi þarf að vera verulegt og vel skilgreint.
Nemendur og leiðbeinendur eru hvattir til að kynna sér vandlega reglur sjóðsins og þær kröfur sem gerðar eru til umsækjenda.
Umsóknir eru rafrænar og ber að sækja um fyrir klukkan 16:00 hinn 15. mars á http://www.rannis.is/. Umsóknareyðublað verður aðgengilegt hér á heimasíðunni aðra vikuna í febrúar. Allar nánari upplýsingar veitir Guðný Hallgrímsdóttir, gudny@rannis.is, sími 515 5818.
Auk almennra styrkja veitir Rannsóknarnámssjóður FS-styrki í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir. Miðað er við þrjá umsóknarfresti á ári fyrir FS-styrki: 15. mars kl. 16:00, 16. ágúst kl. 16:00 og 15. nóvember kl. 16:00. Sjá nánari upplýsingar um FS-styrki á heimasíðu Rannís.
| Fréttasafn |



