Forsíðufréttir
19.2.2010
Viltu byggja upp samstarfsnet á þínu rannsóknasviði?
Þrjátíu ný COST verkefni hafa verið samþykkt, en tilgangur þeirra er að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum rannsóknasviðum og leiða saman samstarfsaðila.
Þátttakendur í COST verkefnum skiptast á reynslu og niðurstöðum í gegnum fundi, heimsóknir og ráðstefnur. Verkefnið greiðir fyrir kostnað egna ferðar og ráðstefnu eða fundarhalda en greiðir ekki kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf. Þessi verkefni hafa oft leitt til áframhaldandi samstarfs milli þátttakenda sem skilar sér í styrkumsókn í viðameira rannsóknaverkefni. Aðkoma að COST verkefnum er mjög einföld og öllum opin fyrsta ár verkefnisins. Nánari upplýsingar um þátttöku í COST verkefnum veitir Katrín Valgeirsdóttir á alþjóðasviði Rannís, landstengiliður COST á Íslandi. Netfang Katrínar er katrin(@)rannis.is. Hér má nálgast lista yfir ný verkefni í COST.


English




