Forsíðufréttir
16.2.2010
Evrópska rannsóknasvæðið - helstu áskoranir
Vísinda- og tækniráð og Rannís boða til fundar með Anneli Pauli, aðstoðarframkvæmdastjóra rannsókna- og nýsköpunarskrifstofu ESB (DG Research) þann 19. febrúar í Þjóðmenningarhúsinu.
Anneli Pauli mun fjalla um þróun evrópska rannsóknasvæðisins, væntanlegar breytingar á rammaáætlun og þróun í átt að sameiginlegum rannsóknaætlunum Evrópulanda.
Erindið er áhugavert öllum sem vilja efla sókn í alþjóðlegar samstarfsáætlanir um rannsóknir og nýsköpun.
Vísinda- og tækniráð mun helga næsta fund sinn, þann 19. mars nk., alþjóðamálum og er heimsókn Anneli Pauli mikilvægur liður í undirbúningi fundarins.
Fundarstjóri er Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís.
Dagskrá:
10:00-10:30 Dr. Anneli Pauli: Realising the European Research Area (ERA) - Key challenges
10:30-11:30 Umræður undir stjórn Hallgríms Jónassonar.
Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að skrá sig í síðasta lagi fimmtudaginn 18. febrúar á rannis@rannis.is.


English




