Forsíðufréttir
26.2.2010
Tilnefningar til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt er af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Nýsköpunarverðlaunin 2010 verða veitt 2. mars nk. og eru fimm verkefni tilnefnd.
Samtök iðnaðarins gefa verðlaunin í ár. Verðlaunagripirnir eru hannaðir af Ragnheiði Ingunni Ágústsdóttur myndlistarmanni og Sigurði Má Helgasyni hönnuði.
Sérstök dómnefnd valdi verkefnin fimm sem tilnefnd eru. Í dómnefndinni áttu sæti: Yngvi Freyr Einarsson formaður, tilnefndur af Stúdentaráði Háskóla Íslands, Ragnheiður Kristjánsdóttir tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Davíð Lúðvíksson tilnefndur af Samtökum iðnaðarins, Sigurður Snævarr tilnefndur af Reykjavíkurborg og Hallgrímur Jónasson tilnefndur af Rannsóknamiðstöð Íslands.
Eftirfarandi verkefni eru tilnefnd í ár:
Arfgeng heilablæðing. Nemandi: Björn Þór Aðalsteinsson.
Fornleifar á eyðidal: skráning og kynning á fornum minjum í Seljadal. Nemandi: Ásta Hermannsdóttir.
Sjálfvirki lestrar- og sýndarkennarinn. Nemandi: Gunnar Steinn Valgarðsson.
Súrefnismettunar- og hjartsláttarnemi. Nemandi: Ásgeir Bjarnason.
Arctic snakk. Nemendur: Edda Jóna Gylfadóttir, Guðrún Björk Jónsdóttir, Helga Björg Jónasardóttir og Guðrún Hjörleifsdóttir.


English




