Forsíðufréttir
10.3.2010
Ný stjórn Tækniþróunarsjóðs
Iðnaðarráðherra hefur skipað í stjórn Tækniþróunarsjóðs til ársloka 2012. Stjórnina skipa sjö einstaklingar til þriggja ára í senn. Stjórnarformaður er Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP og er hann skipaður af iðnaðarráðherra. Aðrir fulltrúar í stjórn eru:
Dagný Halldórsdóttir, tilnefnd af tækninefnd Vísinda- og tækniráðs
Arndís Steinþórsdóttir, tilnefnd af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Magnús B. Jónsson, tilnefndur af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Ása Brynjólfsdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
Hermann Guðmundsson, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
Vilborg Einarsdóttir, tilnefnd af Samtökum iðnaðarins
Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra en Rannís hefur umsjón með sjóðnum.


English




