Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

18.3.2010

Skýrsla verkefnishóps NordForsk NORIAnet Asia

Út er komin lokaskýrsla NordForsk NORIAnet Asia verkefnishóps um samstarf Norðurlandanna við Indland og Kína á sviði rannsókna. Hana má nálgast í .pdf formi hér . Markmið Asía NORIA-net verkefnisins var að greina þarfir og undirbúa formgerð fyrir sameiginleg rannsóknarverkefni Norðurlandanna í samstarfi við Asíuríki, með áherslu á Indland og Kína.

Lokamarkmiðið var að koma á fót varanlegum grundvelli fyrir rannsóknasamstarfi milli áðurnefndra ríkja, fjármagnað af NordForsk og Vísinda- og tækniráðum Norðurlandanna. Ríkjandi staða á sviði rannsóknasamstarfs Norðurlandanna við Indland og Kína var metin og í kjölfarið voru framtíðartækfæri greind og tillögur um mögulegar leiðir til samstarfs lagðar fram.

Verkefnið var til tveggja ára og fjármagnað af NordForsk og verkefnisstjórn var í höndum Finnlands Akademíu. Verkefnið er samstarfsverkefni Norðurlandanna og eru eftirfarandi stofnanir þátttakendur:

  • Finnlands Akademía Academy of Finland (AoF);
  • Norska rannsóknaráðið Research Council of Norway (RCN);
  • Sænska atvinnu- og félagsráðið Swedish Council for Working Life and Social Research (FAS);
  • Rannsóknamiðstöð Íslands Icelandic Centre for Research (Rannis);
  • Danska vísinda, tækni og nýsköpunarstofnunin Danish Agency of Science, Technology and Innovation(DASTI)

Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<