Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

19.3.2010

Ísland í 14. sæti í nýsköpun

Út er komin Evrópska stigataflan um nýsköpun (European Innovation Scoreboard) sem greinir frá samanburði á frammistöðu aðildaþjóða Evrópusambandsins í nýsköpun auk Króatíu, Serbíu, Tyrklands, Íslands, Noregs og Sviss.  Ísland er í 14. sæti í hópi 33 landa í þessari nýjustu mælingu Evrópusambandsins. 

Niðurstöðurnar leiða einnig í ljós að Íslendingar tilheyra nú flokknum fylgiþjóðir (innovation followers), sem standa að einhverju leyti lakar en úrvalsþjóðirnar (innovation leaders) en eru að jafnaði ofanvið eða nálægt meðaltali Evrópusambandslandanna.

Niðurstöðurnar gefa til kynna að íslensk fyrirtæki séu að sækja á í nýsköpun enda lenti Ísland í hópi miðlungsþjóða í síðustu mælingu.  Hin Norðurlöndin eru öll talin til úrvalsþjóða, þó ekki Noregur sem í dag tilheyrir miðlungsþjóðum í nýsköpun.

Styrkleikar Íslands eru á sviði fjármögnunar og stuðnings við nýsköpun og eins í tengslamyndun og frumkvöðlastarfi innan fyrirtækja.  Veikleikar okkar liggja á sviði mannauðsmála, fjölda nýsköpunarfyrirtækja og efnahagslegum áhrifum af nýsköpun okkar.

Hér má finna umfjöllun um eðli og tegundir nýsköpunar ásamt eldri útgáfum af Evrópsku stigatöflunni.

Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<