Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

8.4.2010

Óskað eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs

Verðlaunin eru árlega veitt vísindamanni sem þykir hafa skarað fram úr snemma á ferlinum og skapað væntingar um mikilvægt framlag í vísindastarfi. Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 12. apríl nk. Verðlaunin eru tvær milljónir króna og verða afhent á Rannsóknaþingi í vor.

Tilnefningar mega koma frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna er heimilt að senda inn tilnefningar. Ferilskrá vísindamanssins skal fylgja tilnefningu.

Við mat á tilnefningum til verðlaunanna er tekið tillit til námsferils viðkomandi vísindamanns, sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa og alþjóðasamstarfs, svo og annarra vísbendinga um líklegan árangur af störfum viðkomandi. Sérstaklega er litið til brautryðjendastarfs í vísindum. Þá er litið til faglegs framlags til starfsfélaga og miðlun þekkingar til íslensks samfélags. Sex handhafar verðlaunanna skipa dómnefnd.

Almennt er miðað við að þeir sem koma til álita séu ekki eldri en 40 ára en þó er tekið fullt tillit til tafa sem kunna að verða á ferli vísindamannsins vegna ummönnunar barna.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 12. apríl 2010.

Tilnefningum og upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað með tölvupósti til Rannís á netfangið rannis@rannis.is

Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs verða afhent á Rannsóknaþingi í vor.

Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<