Forsíðufréttir
29.3.2010
Aukning í útgjöldum til rannsókna og þróunar á Norðurlöndunum
Samkvæmt nýútgefinni tölfræði um rannsóknir og þróunarvinnu á Norðurlöndunum hefur orðið mikil aukning í útgjöldum til þessarar starfsemi frá árinu 2005. Mesta aukningu í útgjöldum er að finna í Noregi eða um 12% á ári. Á Íslandi hefur aukningin að jafnaði verið um 11% á ári, í Danmörku 8% og um 6% í Finnlandi og Svíþjóð.
Nánari upplýsingar um þessa nýju tölfræði má finna á heimasíðu NIFU STEP (Norwegian Institute for Studies in Innovation, Research and Education).


English




