Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

16.4.2010

Rannsóknasjóður 2011

Auglýst er eftir umsóknum um nýja styrki úr Rannsóknasjóði fyrir styrkárið 2011. Umsóknafrestur er 1. júní 2010.

       

Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknarverkefni einstaklinga, rannsóknarhópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja. Rannsóknasjóður veitir þrenns konar styrki með umsóknafrest 1. júní 2010:

• Öndvegisstyrki
• Verkefnastyrki
• Rannsóknastöðustyrki

Styrkirnir eru veittir til allt að þriggja ára í senn. Umsækjendur sem hlutu styrk til verkefna árið 2010 með áætlun um framhald á árinu 2011 skulu senda ársskýrslu til sjóðsins fyrir 10. janúar 2011 en þurfa ekki að endurnýja umsókn.

Allar umsóknir og umsóknagögn skulu vera á ensku. Undanþágur eru aðeins veittar frá þessari meginreglu ef birtingar á viðkomandi fræðasviði einskorðast við íslenska útgáfu. Í þeim tilvikum skal umsækjandi fá leiðbeiningar hjá starfsmönnum Rannís. Allar umsóknir um öndvegisstyrki skulu vera á ensku.

Ítarlegar upplýsingar um Rannsóknasjóð, styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á hér.

 

 

Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<