Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

19.4.2010

Rannís auglýsir eftir fólki til starfa

Rannís óskar eftir tveimur starfsmönnum, öðrum á rannsókna- og nýsköpunarsvið og hinum á alþjóðasvið.

           

Leitað er eftir fólki í eftirtalin störf:

  • Sérfræðingur á sviði náttúru- og umhverfisvísinda
    Starfið, sem er fullt starf, felst í umsjón með umsóknum og úthlutunum úr sjóðum í umsýslu
    RANNÍS. Umsjón með framkvæmd og þátttöku í erlendum verkefnum á vegum RANNÍS. Daglegum
    samskiptum við viðskiptavini stofnunarinnar. Skipulagningu funda og ráðstefna sem og þátttaka í öðru
    kynningarstarfi og öðrum tilfallandi verkefnum. Upplýsingar um starfið veitir Magnús Lyngdal Magnússon, sviðsstjóri rannsókna- og vísindasviðs. Sími 515 5800 eða magnus@rannis.is. Sjá nánar hér.
  • Umsjón með EURAXESS starfatorginu
    Starfið, sem er fullt tímabundið starf í 1 ár (með möguleika á framlengingu), felst í umsjón með vefsíðu EURAXESS starfatorgsins og upplýsingagjöf til erlends vísindafólks er hyggst starfa á Íslandi. Kynningarstarf tengt EURAXESS. Dagleg samskipti við viðskiptavini stofnunarinnar og önnur tilfallandi verkefni. Upplýsingar um starfið veitir Elísabet Andrésdóttir, sviðsstjóri alþjóðasviðs. Sími 515 5800 eða elisabet@rannis.is. Sjá nánar hér.

            

Umsóknarfrestur í bæði störfin er er til og með 3. maí 2010.

Umsækjendur sendi rafræna umsókn með ferilskrá ásamt afriti af prófskírteini til Herdísar Þorgrímsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu, herdis@rannis.is. Í efnislínu tölvupósts skal merkja umsóknina: Starfsumsókn náttúru- og umhverfisvísindi eða starfsumsókn EURAXESS starfatorg.

Við ráðningu í störfin verður tekið mið af jafnréttisáætlun Rannís. Laun greiðast samkvæmt viðeigandi kjarasamningi við Fjármálaráðuneytið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.

               

Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<