Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

5.5.2010

Vaxtarsprotinn 2010

Nox Medical ehf. hlaut í morgun Vaxtarsprotann 2010 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Fyrirtækið meira en tífaldaði veltu sína milli áranna 2008 og 2009 úr 16,5 m.kr í um 175 m.kr. Fyrirtækin Hafmynd, Menn og Mýs og Valka fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan vöxt á síðasta ári.

 

Vaxtarsprotinn er viðurkenning sem veitt er á vegum Samtaka iðnaðarins, Rannsóknamiðstöðvar Íslands og Háskólans í Reykjavík. Tilgangurinn er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, afhenti Sveinbirni Höskuldssyni framkvæmdastjóra Nox Medical Vaxtarsprotann 2010 að viðstöddum fulltrúum sprotafyrirtækja og stuðningsaðilum atvinnulífsins í Grasagarðinum Laugardal við hátíðlega athöfn.

Sjá nánari umfjöllun um Vaxtarsprotann 2010 á vef SI hér.

Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<