Forsíðufréttir
6.5.2010
Þrír hljóta Rannsóknastyrki Bjarna Benediktssonar
Miðvikudaginn 5. maí var þremur styrkjum úthlutað úr sjóðnum Rannsóknastyrkir Bjarna Benediktssonar við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu. Veittir voru þrír styrkir á sviði lögfræði og sagnfræði.
Kristín Benediktsdóttir doktorsnemi við lagadeild Háskóla Íslands hlaut styrk að upphæð 1 milljón kr. til rannsóknar á réttarstöðu aldraðra, Þór Whitehead sagnfræðingur hlaut 500 þús. kr. styrk til rannsóknar á Íslandi í síðari heimsstyrjöldinni og Sigríður Matthiasdóttir Hugvísindastofnun Háskóla Íslands hlaut 500 þús. kr. til að rannsaka hugmyndir og viðhorf í stjórnarstefnu Viðreisnarstjórnarinnar á sviði velferðar- og menntamála. Nánar um sjóðinn hér.


English




