Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

4.6.2010

Tækifæri til að komast inn í COST verkefni

Þrjátíu ný COST verkefni hafa verið samþykkt og nú er tækifæri til að óska eftir að komast inn í verkefnin. Tilgangur COST verkefna er að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum rannsóknasviðum og er aðkoma að þeim einföld og opin fyrsta ár verkefnsins. COST greiðir fyrir kostnað vegna ferða og ráðstefnuhalds en ekki fyrir kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf. Þátttaka í COST hefur oft leitt til áframhaldandi samstarfs í stærri verkefnum. HÉR er að finna upplýsingar um verkefni sem hafa nýlega verið samþykkt.

 

Umsókn um þátttöku í COST verkefnum fer þannig fram:

Senda skal bréf til Katrínar Valgeirsdóttur landstengiliðs COST á Íslandi, þar sem óskað er eftir aðkomu að ákveðnu verkefni.

Umsóknin þarf að vera á ensku og íslensku.

Eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram í bréfinu.

  • Tilgreina númer og heiti COST verkefnis og nöfn á forsvarsmönnum verkefnisins
  • Hvers vegna þátttaka í verkefninu er mikilvæg fyrir íslenska þátttakendur
  • Lýsing á rannsóknum umsækjenda á viðkomandi sviði
  • Nöfn, stofnun, tölvupóstfang fyrir þá aðila sem verða íslenskir fulltrúar í verkefninu
  • Aðeins geta tveir íslenskir fulltrúar farið inn í hvert COST verkefni.
  • Yfirmaður stofnunar/fyrirtækis/deildar skal undirrita bréfið
  • CV á ensku fyrir tilvonandi fulltrúa.

Sendið ofangreind skjöl sem viðhengi í tölvupósti og frumrit af bréfi með undirskrift yfirmanns í landpósti.

Rannís tilnefnir íslensku fulltrúana í verkefnið og sendir  til menntamálaráðuneytis og til fulltrúa okkar í sendiráðinu í Brussel, sem sér um að MoU (Memorandum of Understanding) sé undirritað. 

Fyrstu 12 mánuðina eftir að verkefni hefst er það öllum opið.

Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<