Forsíðufréttir
9.6.2010
Úthlutun Tækniþróunarsjóðs kynnt 10. júní kl. 15-17 í Marel, Garðabæ
Rannís og iðnaðarráðuneytið kynna úthlutun Tækniþróunarsjóðs til nýsköpunarverkefna fimmtudaginn 10. júní kl. 15-17 í húsakynnum Marel í Garðabæ. Athöfnin hefst með ávarpi iðnaðarráðherra, Katrínar Júlíusdóttur og síðan kynnir Hilmar Veigar Pétursson, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs úthlutun sjóðsins. Kristinn Anderson flytur ávarp fyrir hönd Marel og nokkur sprotafyrirtæki segja frá verkefnum sínum.
Léttar veitingar. Takið tímann frá og munið að góð mæting sendir skýr skilaboð um öflugan Tækniþróunarsjóð.
Dagskrá:
15:10 - 15:20 Ávarp iðnaðarráðherra, Katrínar Júlíusdóttur
15:20 - 15:40 Hilmar Veigar Pétursson, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs kynnir úthlutun
15:40 - 15:50 Kristinn Andersen, þróunarstjóri Marel
15:50 - 16:20 Kynningar sprotafyrirtækja á verkefnum
16:20 - 17:00 Léttar veitingar


English




