Forsíðufréttir
22.6.2010
Viltu taka þátt í Vísindavöku 2010?
Vísindavaka 2010 - stefnumót við fræðimenn verður haldin föstudaginn 24. september nk. í Listasafni Reykjavíkur. Stofnanir, háskólar og fyrirtæki sem hafa áhuga á að vera með sýningarbás á Vísindavökunni geta nálgast kynningarbréf og skráningarblað hér.
Í tilefni af fimm ára afmæli Vísindavökunnar á þessu ári verður lögð sérstök áhersla á lifandi og skemmtilegar kynningar sem jafnvel bjóða upp á þátttöku gesta og einnig verður möguleiki á að vera með atriði á sviði til að sýna almenningi að vísindin eru lifandi og að fræðimenn rokka!
Rannís stendur fyrir Vísindavökunni en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu í tengslum við Dag evrópska vísindamannsins. Markmiðið er að vekja áhuga almennings á vísindum og kynna fólkið á bak við þau. Þar fær fólk af öllum fræðasviðum tækifæri til að koma sér og rannsóknum sínum á framfæri á auðskiljanlegan og skemmtilegan hátt enda á Vísindavakan að höfða til alls almennings, ekki síst til fjölskyldna, barna og ungmenna.


English




