Forsíðufréttir
2.7.2010
Greining á nýjum umsóknum í Rannsóknasjóð fyrir 2011
Umsóknafrestur í Rannsóknasjóð vegna styrkársins 2011 rann út 1. júní 2010. Alls bárust 248 umsóknir sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Sóknarfjárhæð heldur hins vegar áfram að hækka á milli ára (er nú ríflega 1.600 millj. kr.). Hér má nálgast greiningu á nýjum umsóknum.
Varðandi nýjar umsóknir má nefna nokkur atriði:
- Alls bárust 248 umsóknir um nýja styrki að þessu sinni, 210 umsóknir um verkefnisstyrk (84,7%), 21 umsókn um rannsóknastöðustyrk (8,5%) og 17 umsóknir um öndvegisstyrk (6,9%).
- Sótt er um ríflega 1.600 millj. kr. sem skiptist þannig á styrktegundir: verkefnisstyrkir eru um 1.150 millj. kr. (70,5%), rannsóknastöðustyrkir um 120 millj. kr. (7,3%) og öndvegisstyrkir um 360 millj. kr. (22,2%).
- Meðalupphæð nýrra umsókna fyrir styrkárið 2011 er um 6,6 millj. kr. Meðalupphæðin var 2,7 millj. kr. fyrir árið 2004.
- Fjöldi umsókna í fagráði verkfræði, tækni- og raunvísinda er 54, fagráði náttúru- og umhverfisvísinda 56 og 69 í fagráðum heilbrigðis- og lífvísinda og félags- og hugvísinda hvoru um sig. Sóknarfjárhæð er langhæst í fagráði heilbrigðis- og lífvísinda eða ríflega hálfur milljarður króna.
- Um helmingur verkefna sem nú er sótt um styrk fyrir eru þverfagleg.
- Langflest verkefni eru til þriggja ára eða um 80%.
- Skráðir verkefnisstjórar eru 251 og meðumsækjendur 644. Umsækjendur eru því alls 895 talsins eða 3,6 að meðaltali á hverri umsókn.
- Tveir þriðju hlutar umsækjenda (verkefnisstjórar og meðumsækjendur) eru karlar og um þriðjungur konur. Kynjahlutfall er áberandi skakkt í fagráði verkfræði, tækni- og raunvísinda.
- Meðalaldur verkefnisstjóra er um 44 ár. Meðalaldur er lægstur í fagráði verkfræði, tækni- og raunvísinda (40 ár) en hæstur í fagráði félags- og hugvísinda (48 ár).
- Meðalaldur verkefnisstjóra er nokkuð svipaður á verkefnisstyrks- og öndvegisstyrksumsóknum en töluvert lægri á umsóknum um rannsóknastöðustyrk. Þegar miðað er við einstaka styrktegundir er meðalaldur er ávallt lægstur í fagráði verkfræði, tækni- og raunvísinda og alltaf hæstur í fagráði félags- og hugvísinda.
- Ríflega 90% verkefnisstjóra hafa lokið doktorsprófi en tæplega 80% meðumsækjenda.
- Á umsóknir eru skráðir 260 meistaranemar og 268 doktorsnemar.
- Um 75% verkefnisstjóra og 63% meðumsækjenda koma frá háskólum. Hlutfallið er hæst í fagráði verkfræði, tækni- og raunvísinda þar sem um 89% verkefnisstjóra og 76% meðumsækjenda koma úr háskólum en lægst í fagráði heilbrigðis- og lífvísinda þar sem um 61% verkefnisstjóra og 51% meðumsækjenda koma úr háskólum.
- Um 92% verkefnisstjóra og 73% meðumsækjenda koma frá Íslandi. Ef aðsetur meðumsækjenda er skoðað eftir löndum er samstarfið mest við Bandaríkin.


English




