Forsíðufréttir
5.7.2010
Umsóknarfrestur heimkomustyrkja (Reintegration Grants) 7. september
Næsti umsóknarfrestur heimkomustyrkja (Reingration Grants) í Mannauðsáætlun 7. rannsóknaáætlunar (People) verður 7. september 2010. Styrkirnir henta sérstaklega vel þeim sem hafa lokið doktorsgráðu og/eða starfað að rannsóknum utan Evrópu um nokkurra ára skeið.
Vísindafólk sem þegar hefur hafið störf á Íslandi hefur kost á að sækja um styrkinn allt að ári eftir upphaf starfs.
Umsóknargögn og frekari upplýsingar má nálgast í gegnum síðuna http://www.rannis.is/7ra/mannaudur/irg/
Upplýsingar veitir Þorsteinn Brynjar Björnsson á alþjóðasviði Rannís í síma 515 5800. Einnig má senda fyrirpurn á netfangið thorsteinn@rannis.is.


English




