Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

23.8.2010

Skattívilnun

Í lok árs 2009 voru samþykkt lög á Alþingi um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki (nr. 152/2009). Lögin kveða á um að fyrirtæki geti fengið skattfrádrátt vegna kostnaðar við rannsóknir og þróunarstarf og að fjárfestar fái skattafslátt vegna fjárfestingar í nýsköpunarfyrirtækjum. Opið er fyrir rafrænar umsóknir.

Til að skattyfirvöld veiti slíka ívilnun er gerð krafa um að Rannís veiti staðfestingu á að um nýsköpunarfyrirtæki sé að ræða í samræmi við ákvæði laganna. Gildir afgreiðslan fyrir yfirstandandi almanaksár.  

Rannís hefur komið upp rafrænu umsóknarkerfi í tengslum við lögin um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Umsóknarfrestur er til 1. september n.k. Fyrirtæki þurfa að  skrá sig í umsóknarkerfið fyrir þann tíma, en að þessu sinni verður veitt svigrúm til að ljúka umsóknum til 20. september.

Á heimasíðu Rannís er handbók með leiðbeiningum og upplýsingum um umsóknarferlið, en þar má einnig finna fyrrgreind lög auk reglugerða (nr. 592 og 593 frá 2010).

Rannís mun leggja mat á hvort umsóknir uppfylli skilyrði laganna og tilkynna viðkomandi fyrirtæki niðurstöðuna auk tilkynningar til Ríkisskattstjóra.

Frekari upplýsingar um lögin og umsóknarferlið veitir Sigurður Björnsson hjá Rannís í síma 515 5800, netfang sigurdur@rannis.is.

Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<