Forsíðufréttir
25.8.2010
Rannís og Rannsóknasjóður hljóta 110 milljóna kr. styrk frá Evrópusambandinu
Rannís og Rannsóknasjóður hafa hlotið 110 milljóna króna styrk úr Rannsóknaáætlun Evrópusambandsins. Féð verður nýtt til að fjármagna rannsóknastöðustyrki í samstarfi við stofnanir eða fyrirtæki hér á landi.
Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem hafa lokið doktorsprófi á síðastliðnum fimm árum. Framlagið gerir sjóðnum kleift að veita fleiri nýdoktorum tækifæri til að hasla sér völl í rannsóknum auk þess sem styrkirnir munu stækka umtalsvert frá því sem nú er. Framlag Evrópusambandsins hljóðar upp á 700 þús. evrur, sem er um þriðjungur af því sem til úthlutunar verður á tveggja ára tímabili, en auglýst verður eftir umsóknum á árunum 2011 og 2012. Ljóst er að framlag ESB verður mikil lyftistöng fyrir starfsumhverfi og atvinnumöguleika efnilegs vísindafólks hér Íslandi. Styrkurinn kemur úr mannauðsáætlun 7. rannsóknaáætlunar ESB. Umsýsla styrkjanna verður í höndum Rannís.


English




