Forsíðufréttir
30.8.2010
Sérfræðingur óskast til starfa á sviði nýsköpunar- og tækniþróunar
Miðlun upplýsinga og uppfærsla handbóka, úrvinnsla gagna, skipulagning funda sem og þátttaka í kynningarstarfi og öðrum tilfallandi verkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Meistarapróf á sviði verkfræði eða raungreina er æskilegt
- Starfsreynsla innan nýsköpunarfyrirtækja er kostur
- Reynsla af rannsóknum er æskileg
- Reynsla af alþjóðasamstarfi er kostur
- Metnaður til að ná árangri í starfi með því að veita góða þjónustu, sýna vönduð vinnubrögð og frumkvæði
- Góð íslenskukunnátta, færni í ensku og að minnsta kosti einu Norðurlandamáli
Upplýsingar um starfið veitir Sigurður Björnsson, sviðsstjóri nýsköpunar- og tækniþróunar. Sími 515 5800 eða sigurdur@rannis.is.
Umsóknarfrestur er til og með 12. september 2010.
Umsækjendur sendi rafræna umsókn með ferilskrá ásamt afriti af prófskírteini til Herdísar Þorgrímsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu, herdis@rannis.is. Í efnislínu tölvupósts skal heiti umsóknar koma fram: Starfsumsókn nýsköpun og tækniþróun.
Við ráðningu í starfið verður tekið mið af jafnréttisáætlun Rannís. Laun greiðast samkvæmt viðeigandi kjarasamningi við Fjármálaráðuneytið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.


English




