Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Forsíðufréttir

6.9.2010

Kynningarfundur Tækniþróunarsjóðs

Tækniþróunarsjóður boðar til opins kynningarfundar á Grand Hótel Reykjavík, miðvikudaginn 8. september kl. 8:30-10:00 í tengslum við umsóknarfrest 15. september nk.
 

Starfsmenn Rannís kynna niðurstöðu umsókna fyrir vorið 2010 og fjalla um umsóknar- og matsferli sjóðsins. Davíð Lúðvíksson, forstöðumaður hjá Samtökum iðnaðarins, stýrir fundinum.

Boðið verður upp á morgunkaffi og meðlæti á fundinum

Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra og starfar skv. lögum um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun, nr 75/2007. Sjóðurinn fjármagnar nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs. Umsækjendur geta verið fyrirtæki, einstaklingar, rannsóknastofnanir og háskólar.

Fréttir - RSS


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<