Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir

Rannís

21.9.2009

Sturlunga og nútíminn á fyrsta Vísindakaffinu

Fyrsta Vísindakaffið er í kvöld, mánudag 21. sept. kl. 20:00-21:30 á Súfistanum, Iðuhúsinu Lækjargötu 2. Dr. Guðrún Nordal forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar fjallar um hvernig fíkn ungra karlmanna í völd og fé réði miklu um fall í íslensku samfélagi í tíð Sturlunga. Þetta þykir mörgum ríma óþægilega við fjölda atburða í nútímanum. Alvarlegt málefni með léttum undirtóni!

21.9.2009

Norræna velferðarsamfélagið - styrkir til doktorsnema og nýdoktora

Norrænt öndvegissetur um norræna velferðarsamfélagið, sögu þess og framtíðarhorfur, auglýsir lausa til umsóknar styrki til doktorsnema og nýdoktora. Styrkirnir er veittir til 3 - 12 mánaða. Umsóknarfrestur er til 25. september.

16.9.2009

Dagskrá Vísindakaffisins

Dagskrá Vísindakaffikvöldanna er komin! Komið og takið þátt í skemmtilegum umræðum um rannsóknir og vísindi. Vísindakaffið verður haldið í Súfistanum, 21., 22., 23. og 24. september og eitt Vísindakaffi fyrir norðan, á Friðriki V., 24. sept. Sjá nánar HÉR.

14.9.2009

Norræn ráðstefna um jafningjamat

Norræn ráðstefna um jafningjamat verður haldin í Helsinkin í Finnlandi þann 30. október n.k. Ráðstefnan er skipulögð af NordForsk og er hluti af  netsamsamstarfi um þróun jafningjamats á Norðurlöndum.

9.9.2009

Fjölbreytt Vísindavaka í vændum

Allir háskólar landsins og fjölmörg fyrirtæki og stofnanir hafa skráð sig til þátttöku á Vísindavöku 2009 og er ljóst að viðfangsefnin, sem kynnt verða, munu verða afar fjölbreytt. Á Vísindavöku gefst tækifæri til að hitta vísindafólk og skoða hvað það er að fást við og er öllum vísindagreinum gert jafnhátt undir höfði. Vísindavakan verður haldin föstudaginn 25. september nk. í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsinu, kl. 17-22. Rannís stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi, en viðburðurinn er styrktur af 7. rannsóknaáætlun ESB. Hér er tengill í vefsíðu Vísindavökunnar.

8.9.2009

Átak til atvinnusköpunar - frestur til 29. sept.

Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki iðnaðarráðuneytisins undir yfirskriftinni Átak til atvinnusköpunar. Átakið veitir styrki til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með verkefninu fyrir hönd iðnaðarráðuneytisins. Styrkir úr átakinu eru veittir tvisvar á ári og er næsti umsóknarfrestur 29. september næstkomandi.

28.8.2009

Erlent tæknisamstarf og fjármögnun

Nýsköpunarmiðstöð Íslands boðar til morgunverðarfundar 2. september með Ray Philips frá Pera í Bretlandi um erlent tæknisamstarf og fjármögnun slíkra verkefna í gegnum Resarch for the Benefit of SME's áætlun Evrópusambandsins. Fundurinn hefst kl. 08:15 á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og lýkur fyrir kl. 10:00.

20.8.2009

Ísland - Frakkland og orkulausnir

Þriðjudaginn 25. ágúst kl. 20.00 í Alliance Française verður opinn fyrirlestur á frönsku og íslensku. Frakkar og Íslendingar hafa með sér mikið, vaxandi sífellt fjölbreyttara vísindasamstarf. Greinar, skrifaðar sameiginlega af frönskum og íslenskum vísindamönnum, eru birtar nokkrum sinnum í viku. Sendiráð Frakklands og Rannís hafa s.l. fimm ár unnið saman að Jules Verne vísindasamstarfsverkefninu, en það veitir fé til samvinnu franskra og íslenskra rannsóknastofnana.

16.8.2009

Auglýst er eftir umsóknum í Rannsóknasjóð

Auglýst er eftir umsóknum í Rannsóknasjóð fyrir styrkárið 2010. Umsóknarfrestur er til 1. október 2009.

10.7.2009

Sérfræðingur óskast á Rannís

Starfið felst í umsjón og stjórn verkefna á greiningarsviði. Úttektir, greiningar og rannsóknir á Íslandi sem byggjast bæði á eigindlegum og megindlegum aðferðum. Umsjón með öflun og úrvinnslu gagna. Skýrslugerð ásamt kynningu niðurstaðna og þátttöku í erlendu samstarfi.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<