Rannís
3.12.2007
Auglýst eftir umsóknum í örvísindaáætlun 7. RÁ
3.12.2007
Auglýst eftir umsóknum í áætlun 7.RÁ um matvæli, landbúnað, sjávarútveg og líftækni
30.11.2007
Auglýst eftir umsóknum í Mannauðsáætlun 7.RÁ
29.11.2007
Nýsköpun í heilbrigðisþjónustu - morgunverðarfundur 4. des.
20.11.2007
Ný fjármögnun fyrir sprotafyrirtæki
Boðað er til opins kynningarfundar um Eurostars, nýjan möguleika á fjármögnun verkefna sprotafyrirtækja sem stunda rannsóknir og þróun. Fundurinn verður þriðjudaginn 27. nóvember kl. 8:30 - 10:00 í Húsi atvinnulífsins.
8.11.2007
Konur stjórna 43% nýrra verkefna Tækniþróunarsjóðs
Alls bárust 39 umsóknir og sótt var um 285 m. kr. fyrir fyrsta ár. Hægt er að sækja um verkefnisstyrki til allt að 3ja ára. Til ráðstöfunar eru 111 m.kr fyrir ný verkefni að þessu sinni.
Verkefnisstjórar þessara 14 verkefna eru sex konur og átta karlar, og koma sjö þeirra frá fyrirtækjum, sex frá rannsóknastofnunum og einn frá háskóla, Listaháskóla Íslands.
Sjóðnum bárust margar umsóknir sem fjárhagslegt bolmagn sjóðsins leyfði ekki stuðning við.
30.10.2007
Loftslag, mannvist og saga - minningarfyrirlestur Vilhjálms Stefánssonar
19.10.2007
Lýst eftir umsóknum í áætlunina Samhæfing rannsókna í 7. RÁ ESB
Þann 19. október var birt auglýsing um umsóknir í áætlunina samhæfing rannsókna. Umsóknarfrestur er til 6. mars 2008, kl. 17.00 á Brusseltíma.
2.10.2007
Niðurstöður úr mati umsókna í áætlun 7. RÁ um Hugmyndir
Rannsóknarráð Evrópu (ERC) hefur gefið út fréttatilkynningu vegna niðurstöðu úr fyrsta áfanga umsókna um upphafsstyrk (ERC starting independent grant) í áætlun Evrópusambandsins um hugmyndir (IDEAS).
1.10.2007
Á annað þúsund gestir á Vísindavöku
Rannís efndi til Vísindavöku í þriðja sinn á degi vísindamanna föstudaginn 28. september. Vakan var haldin í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, og stóð fram á kvöld. Tæplega 1400 gestir heimsóttu vökuna til að fræðast og skemmta sér í leiðinni. Alls var boðið upp á 50 atriði á vökunni og hefur hún aldrei verið með jafn stórri dagskrá. Meðal gesta voru fulltrúar frá vísindahátíðinni í Perugia á Ítalíu.
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra setti hátíðina og í framhaldi voru veitt verðlaun í teiknimyndasamkeppni 9 - 11 ára barna. Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur veitti viðtöku verðlaunum fyrir framlag sitt til vísindamiðlunar.


English




