Aðrir sjóðir
11.4.2006
Tækjasjóður tilkynnir úthlutun 19. apríl
7.4.2006
Grænsíða: Upplýsingakerfi fyrir skógrækt - rannsóknarverkefni lokið
Grænsíða er öflugt og nútímalegt landfræðilegt upplýsingakerfi og afar notendavænt.
Verkefnisstjóri var Guðmundur Ólafsson.
27.2.2006
Hlutur rannsókna á heilbrigðissviði stækkar
Á tímabilinu frá 1977 til 2003 dró úr hlutfallslegu vægi rannsókna á grunnauðlindum og í hefðbundnum atvinnugreinum en hlutur rannsókna á heilbrigðissviði áttfaldaðist.
27.2.2006
Opinber innkaup til stuðnings nýsköpunar
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gefið út skýrsluna – Public Procurement for Research and Innovation (opinber innkaup fyrir rannsóknir og nýsköpun). Þar eru taldar upp tillögur sérfræðingahóps á vegum framkvæmdastjórnarinnar um opinber innkaup til stuðnings rannsókna, þróunar og nýsköpunar. Opinber innkaup nema 16,3% af vergri landsframleiðslu ríkja ESB.
31.1.2006
Ný stjórn Launasjóðs fræðiritahöfunda
Menntamálaráðuneytið hefur skipað nýja stjórn Launasjóðs fræðiritahöfunda, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 268/1999 um sjóðinn. Skipunin er frá 15. febrúar 2006 til 30. september 2007.
Stjórnin er þannig skipuð:
- Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri, formaður, skipaður án tilnefningar.
- Ari Trausti Guðmundsson náttúrufræðingur, varaformaður, tilnefndur af Rannsóknamiðstöð Íslands.
- Ólöf Garðarsdóttir, sagnfræðingur, tilnefnd af Hagþenki - félagi höfunda fræðirita og kennslugagna.
19.1.2006
Stofngerð þorsks við Ísland - rannsóknarverkefni lokið í markáætlun um U&U
Markmið verkefnisins var að auka þekkingu á stofngerð þorsks við Ísland og þar með að gera það mögulegt að meta hlut ólíkra hrygningaeininga í nýliðun og veiðistofni hverju sinni.
Verkefnisstjóri var Guðrún Marteinsdóttir.
11.1.2006
Starfslaun Launasjóðs fræðiritahöfunda
Launasjóður fræðiritahöfunda auglýsir eftir umsóknum um starfslaun úr sjóðnum sem veitt verða frá 1. júní 2006. Rétt til að sækja úr Launasjóði fræðiritahöfunda hafa höfundar alþýðlegra fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku. Umsóknarfrestur er 25. febrúar.
20.12.2005
Vatnsauðlindir Íslands - jarðefnafræðileg rannsókn, rannsóknarverkefni lokið í U&U
Aðalmarkmið verkefnisins var að rannsaka snefilefnainnihald svo og vetnis-, súrefnis- og kolefnissamsætur í íslensku grunnvatni bæði heitu og köldu.
Verkefnisstjóri var Hrefna Kristmannsdóttir.
15.12.2005
Hagnýting örtækni - norræn styrkur
Norræna nýsköpunarmiðstöðin (NICe) mun fjármagna verkefni innan örtækni fyrir um 10 milljónir norskra króna á árunum 2006 -2007.
6.12.2005
Alfræði íslenskra bókmennta og bókmenntafræða - rannsóknarverkefni í U&U lokið
Markmiðið var að semja rækilegt uppflettirit um íslenskar bókmenntir frá upphafi til okkar daga og um íslenska bókmenntafræði, með greinum um einstaka höfunda, hugtök og verk.
Verkefnisstjóri var Ástráður Eysteinsson.


English




