Aðrir sjóðir
24.11.2003
Upplýsingatækni í byggingariðnaði
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins hefur lokið rannsóknaverkefninu ,,Verklýsingar í byggingariðnaði ný aðferð með notkun upplýsingatækni”. Verkefnið, sem styrkt var af Rannís í markáætlun um upplýsingatækni og umhverfismál um 6,5 m. kr. hafði að markmiði að þróa samþáttað rammakerfi og hugbúnað til að byggja staðlað verklýsingasafn fyrir íslenskan byggingariðnað.
12.9.2003
Kennsluvefur um íslenska myndlist - fréttatilkynning verkefnisstjóra
Markáætlun um upplýsingatækni og umhverfismál. Verkefninu lauk 2003
Námsgagnastofnun, Listasafn Íslands, Næst ehf., Kennaraháskóli Íslands og Ásthildur B. Jónsdóttir fengu úthlutað árin 2001 og 2002 styrk frá Rannís til að gera Kennsluvef um íslenska myndlist. Gerðir voru tveir námsvefir, annar ætlaður yngsta stigi grunnskóla en hinn mið- og unglingastigi.
Listvefur krakka: http://www.namsgagnastofnun.is/isllistvefur/index.htm
Listavefurinn: http://www.nams.is/listavefurinn/index.html
19.8.2003
Vefsetur um íslenskt mál og menningu
Markáætlun um upplýsingatækni og umhverfismál
Fréttatilkynning verkefnisstjóra
Verkefninu lauk 2003
|
HEITI VERKEFNIS : |
Vefsetur um íslenskt mál og menningu |
Númer styrks : |
013330002 |
|
VERKEFNISSTJÓRI : |
Úlfar Bragason |
Sími : |
562 6050 |
|
Styrkþegi (stofnun/ fyrirtæki) : |
Hugvísindastofnun |
Netfang : |
ulfarb@hi.is |
Hugvísindastofnun Háskóla Íslands hefur, í samstarfi við Stofnun Sigurðar Nordals, íslenskuskor og Wisconsin-háskóla, unnið í tvö ár að verkefninu "Vefsetur um íslenskt mál og menningu" sem felst í þróun gagnvirks námsefnis í íslensku fyrir útlendinga.
Hægt er að skoða sýnidæmi á slóðinni http://www.icelandic.hi.is/demo.
27.6.2003
Úthlutað úr markáætlun
Úr markáætlun um umhverfismál og upplýsingatækni var úthlutað 63 m.kr. þar af 45,2 m.kr. til verkefna á sviði upplýsingatækni og 18,5 m.kr. til umhverfisrannsókna.
10.6.2003
Úthlutað úr markáætlun um miðjan mánuð
Úthlutun úr markáætlun Rannís um umhverfismál og upplýsingatækni verður kynnt um miðjan júní.
2.6.2003
Þekkingarleit með gagnanámi
Markáætlun um upplýsingatækni og umhverfismál
Fréttatilkynning verkefnisstjóra
Verkefninu lauk 2003
29.4.2003
Sjö styrkir úr Launasjóði fræðiritahöfunda
Fræðirit um Hringadróttinssögu og saga kvennahreyfingarinnar snemma á síðustu öld eru meðal sjö verkefna sem hlutu styrk úr Launasjóði fræðiritahöfunda.


English




